fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

Rafport – Gæðarafbúnaður

Kynning

free@home fyrir heimilið!

Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 15. október 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rafport hefur verið starfandi frá árinu 1985 og sérhæfir sig í innflutningi á sérhæfðum gæðarafbúnaði til fyrirtækja og einstaklinga, ásamt því að vinna náið með rafverktökum, rafmagnshönnuðum, byggingarverktökum og arkitektum,“ segir Jón Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Rafports. Fyrirtækið flutti í mars á þessu ári í nýtt húsnæði að Auðbrekku í Kópavogi og er þar með stórglæsilegan sýningarsal, þar sem vörur fyrirtækisins eru til sýnis. Rafport er með allt sem tengist rafmagni, hvort sem um er að ræða rofa, tengla, lýsingu eða stýringu á öllu sem tengist heimilinu, fyrirtækinu eða sumarbústaðnum. Rafport flytur meðal annars inn vörur frá þýska framleiðandanum ABB Busch Jaeger, sem er stærsti og virtasti framleiðandinn í þessum vöruflokki þegar kemur að því að velja rofa og tengla eða aðrar snjalllausnir fyrir byggingar, allt eftir því hvað hæfir hverju verkefni. Einnig selur fyrirtækið gamaldags tengla og rofa í retró-útliti frá þýska framleiðandanum Thomas Hoof fyrir húsnæði sem komin eru meira til ára sinna. „Við erum raunar með allt frá byrjun til enda, þegar kemur að rafmagni, allt frá rafmagnsrörinu og þar til þú situr í hægindastólnum að dimma ljósið hjá þér eða láta vatn renna í heita pottinn,“ segir Jón Þór.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

free@home. Aldrei áður eins hagstætt og auðvelt að stjórna heimilinu

Nýjasta nýtt er free@home-stýrikerfið frá ABB Busch-Jaeger, sem er alhliða lausn í ljósa- og hitastýringu. Það breytir íbúðinni eða heimilinu í snjallheimili, hvort sem um ræðir að stýra lýsingu, hita, gardínum, gluggum, dyrasíma, heitum potti eða ljósasenum. free@home er hægt að stjórna með veggrofa, tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma og er það val hvers og eins hvað skal nota. Það er meira að segja hægt að tala við free@home með raddskipunum eins og Siri, allt á mjög notendavænan hátt. „Það sem heillar einnig er að kostnaður við að fá sér free@home hefur lækkað allt að 60% þegar allt er til talið, miðað við framkvæmd á sambærilegri stýringu. Það er því lítill kostnaður sem bætist við hefðbundinn frágang á rafmagni við að fá sér free@home. Þetta er í raun á verði sem flestir geta sætt sig við og veitt sér, sem ekki var áður fyrr. Einnig hentar free@home bæði í gömlum íbúðum jafnt sem nýjum húsum,“ segir Jón Þór.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

USB/Hleðsla

„Ein vinsælasta varan hjá okkur er ótrúlega sniðugur rafmagnstengill með USB-hleðslu. Tenglarnir koma í staðinn fyrir venjulegan rafmagnstengil og hægt er að skipta honum út fyrir hvaða tengil sem er. Fyrir utan að virka sem venjulegur tengill/innstunga þá getur þú hlaðið símann, vasaljósið eða myndavélina með USB snúru án þess að vera með spennubreytir eða fylgihluti.“ Þetta hefur verið afar eftirsótt á heimilum, í fyrirtækjum, sumarbústöðum og hótelum landsins, bendir Jón Þór á. Rafport selur einnig Philips Hue litaskipta-lýsingu þar sem hægt er að stjórna stemningu rýmis með lýsingu. „Þá er hægt að hafa til dæmis dempaða, hlýja lýsingu eða aðra liti eftir því hvað hugur þinn girnist hverju sinni. Hægt er að skapa ótrúlega skemmtilega og margvíslega stemningu með Hue og hún gefur þér góða stjórn á öllum litablæbrigðum,“ greinir Jón Þór frá.

Rafport er staðsett að Auðbrekku 9–11, 200 Kópavogi.
Hægt er að hafa samband í síma 580-1900 eða með því að senda vefpóst á rafport@rafport.is.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Rafports www.rafport.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni