Bíla-Doktorinn
Í Skútuvogi 13 er bílavarahlutaverslunin og bílaverkstæðið Bíla-Doktorinn til húsa. Þar er sinnt almennum bílaviðgerðum og á sama tíma einnig rekin smurstöð. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og eigandi Bíla-Doktorsins, segir fyrirtækið sinni mest Mercedes-Benz, Volkswagen, Audi og Skoda með viðgerðum og varahlutasölu, en þeir smyrji og geri við fjölda annarra bílategunda.
„Varahlutaverslun okkar hefur upp á að bjóða marga af algengustu varahlutum fyrir fyrrnefndar tegundir. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gæðavörur sem uppfylla ströngustu kröfur bifreiðareigenda og eftirlitsaðila í Þýskalandi, þaðan sem megin uppistaða af okkar vörum kemur,“ segir Rúnar. „Varhlutaverslunin leggur áherslu á að nota öflug upplýsingakerfi til að gera afgreiðslu varahluta eins nákvæma og rétta og mögulegt er,“ bætir hann við.
Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrirtæki sem á stóran hóp tryggra viðskiptavina sem margir hverjir hafa átt farsæl viðskipti við verslunina frá upphafi. „Það er markmið okkar að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu byggða á þekkingu og langri reynslu á viðhaldi og umhirðu hvers kyns bifreiða,“ segir Rúnar. „Okkar aðalsmerki er vönduð vinnubrögð sem skila sér í betra umferðaröryggi og áreiðanleika þeirra ökutækja sem við sinnum viðgerðum á og seljum varahluti í,“ segir hann í framhaldinu.
Nafn fyrirtækisins var dregið af viðurnefni Rúnars á meðal bílaáhugamanna. „„Herr doktor“, kalla þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur unnið nærri alla sína starfsævi við bíla og vinnuvélar og er einn þekktasti áhugamaður um Mercedes-Benz á Íslandi en hann hefur haft það að áhugamáli að gera upp og varðveita fornbifreiðar af þeirri gerð. En einnig á hann einn bíl í hópi þeirra elstu hér á landi, Chevrolet árgerð 1931.
„Við bjóðum upp á flestallar almennar bílaviðgerðir,“ segir Rúnar. „Öll umskipti á slithlutum og lagfæringar á biluðu gangverki er eitthvað sem er okkar daglega starf. Þó svo að við bjóðum flestar gerðir bíla velkomnar í viðgerð þá höfum við að mestu leyti sérhæft okkur í Mercedes-Benz, Volkswagen, Skoda og Audi eins og áður sagði og búum við því yfir nokkurri sérþekkingu á þeim,“ segir Rúnar. Hjá Bíla-Doktornum eru fimm starfsmenn; tveir bifvélavirkjar, tveir vélvirkjar og einn starfsmaður sinnir móttöku og varahlutaverslun.