Meistara flísalagnir
Erikas Kozanovas er önnum kafinn maður en hann rekur fyrirtækið Meistara flísalagnir ehf. Fyrirtækið er lítið en sinnir þó stórtækum verkefnum í flísalagningu, til dæmis fyrir Foss Hótel og Grand Hótel. Meistara flísalagnir veita afar fjölbreytta og vandaða þjónustu á sviði gólfefna, veggklæðningar og flísalagningar, hann gerir „allt“ sem rúmast innan þessa sviðs.
Meðal verkefna hjá Meistara flísalögnum eru glæsilegar steinklæðningar, parketlagning, lagning gólfflísa, veggflísar á baðherbergi og margt fleira.
Erikas hefur starfað sem iðnaðarmaður í 15 ár. Hann er frá Litháen en hefur búið á Íslandi í tíu ár og talar ágæta íslensku. Erikas vinnur að mörgum verkefnum fyrir stór fyrirtæki, til dæmis hótelkeðjur, en hann vinnur einnig gjarnan að verkefnum fyrir heimili, stór og smá.
Meistara flísalagnir ehf. eru til húsa að Kambsvegi 16, 105 Reykjavík. Til að panta vinnu, óska eftir tilboðum eða fá nánari upplýsingar um þjónustuna er best að hringja í Erikas í síma 893-7252.
Sjá nánar um þjónustuna á Facebook-síðu Meistara flísalagna.