Hvað gerist í myrkrinu?
Fyrsti „Dine in the Dark“-veitingastaðurinn á Íslandi, Blind Raven, var opnaður í Vatnsholti, um fimmtán kílómetra austan við Selfoss, laugardaginn 25. september við frábærar viðtökur gesta. Hjónin Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir hafa rekið þar sveitagistiheimilið Hótel Vatnsholt síðan 2010 og í dag eru 40 gistiherbergi í boði og veitingasalir sem taka allt að þrjú hundruð manns.
„Íslendingar eru bæði nýjungagjarnir og miklir frumkvöðlar. Ég held að það hafi ekki verið spurning um hvort, heldur hvenær svona staður yrði opnaður á Íslandi,“ segir Jóhann, en þau hjónin opnuðu Blind Raven í síðustu viku. Staðurinn er hannaður að erlendum „Dine in the Dark“-fyrirmyndum, eða eins og við myndum segja á íslensku, Matast í myrkri. Gestir fá matinn og borða í algerlega myrkvuðu herbergi. Þeir einu sem sjá nokkuð þessa kvöldstund eru þjónarnir sem eru með nætursjónauka á höfðinu, öryggisins vegna. „Það er í raun alveg ótrúleg upplifun að loka fyrir þetta skilningarvit, sjónina, og finna hversu háður maður er henni,“ sagði einn gestanna síðastliðinn laugardag.
Gestir velja óvissuferðir á milli fjögurra mismunandi matseðla sem merktir eru með fjórum litum. Rauður seðill: dýr með heitt blóð. Blár: óvissuferð úr hafinu. Grænn: allt úr garðinum. Og hvítur seðill: alger óvissa undir dyggri stjórn kokksins. Þannig kemur staðurinn til móts við til dæmis grænmetisætur, vegan og þá sem vilja eingöngu fisk eða kjöt. Yfirkokkurinn Úlfar Finnbjörnsson sér svo um að framreiða réttina handa „blindu“ gestunum og er maturinn að sjálfsögðu fyrsta flokks. Aðspurður hvort fagurfræðileg framsetning skipti jafnmiklu máli, þegar gestirnir sjá ekki handa sinna skil, svarar Úlfar: „Það er ekki gefin tomma í afslátt með það og mikill metnaður lagður í að láta diskana líta alveg eins út og á spjaldinu sem gestirnir fá að sjá að máltíð lokinni.“
Stemningin sem myndast í salnum er ólík öllu öðru. Andrúmsloftið er rafmagnað af spennu, gleði og eftirvæntingu. Það verður hver og einn að takast á við sjálfan sig og þær tilfinningar sem vakna við það að missa sjónina, og reynir þá meira á hin skilningarvitin eins og heyrn og lyktarskyn. „Það er líka alveg magnað að borða fyrsta flokks mat og meðlæti með mismunandi bragði án þess að sjá, eða vita hvað það er,“ segir Jóhann. Feimnin hverfur og það losnar um hömlur hjá fólkinu í salnum sem ræðir betur saman en ella. „Auk þess er skrítið að sjá ekki andlitin á fólki og svipbrigði þess sem maður talar við. Menn missa grímuna og allir verða jafnir. Það verður líka allt svo fyndið í myrkrinu,“ segir einn gestanna. Í raun má segja að Blind Raven sé tilvalinn áfangastaður fyrir hvers kyns hópefli og óvissuferðir. Að auki má segja að þetta sé fullkomin staðsetning fyrir blint stefnumót, en hugmyndina að veitingastaðnum hefur Jóhann borið í maganum frá því hann horfði á rómantíska gamanmynd, þar sem eitt atriðið var um blint stefnumót á „Dine in the Dark“-veitingastað. Jóhann segist ekki hafa persónulega reynslu í blindum stefnumótum en að hans mati sé útlit ofmetið og innræti vanmetið.
Margt þarf að hugsa út í þegar kemur að vali á réttum fyrir stað eins og þennan. Það er mikilvægt að auðvelt sé að borða matinn með guðsgöfflum (fyrir þá sem treysta sér ekki í hnífapörin) og þá er ekki gott að hafa stóra bita með beinum, eða mikla sósu á disknum. Einnig er mikilvægt að maturinn og meðlætið sé bragðgott og kallist á við óvenju næma bragðlaukana. „Margt bragðast öðruvísi í myrkrinu og sumir þekkja ekki lengur muninn á hvítvíni eða rauðvíni,“ segir Jóhann. „Við hjónin fórum eitt sinn á „Dine in the Dark“-veitingastað í London. Okkur var vísað til sætis inni í algerlega myrkvuðu herbergi. Smám saman varð okkur ljóst að við vorum ekki ein við borðið. Þegar leið á máltíðina og kvöldið höfðum við myndað gott samband við sessunauta okkar og spjölluðum við þá um daginn og veginn. Við völdum að treysta algerlega á kokkinn varðandi matinn og það var ekki fyrr en við komum út úr myrkrasalnum, að við fengum að sjá mynd af réttunum. Ég taldi mig vera borða lungamjúkar grísalundir en fékk að vita að ég var að borða sebrahest. Það var magnað. Upplifun gestanna á laugardaginn var svo mögnuð að þetta er komið til að vera,“ segir Jóhann að lokum og vonast til að sjá sem flesta í myrkrinu.
Blind Raven er einstakur veitingastaður í ekki nema klukkustundar aksturs fjarlægð frá Reykjavík og staðsettur á Hótel Vatnsholti, um 15 kílómetra austan við Selfoss.
Til að byrja með er aðeins opið fyrir hópapantanir í síma 899-7748 og info@hotelvatnsholt.is
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebooksíðu Blind Raven
Blind Raven er með reikning á öllum helstu samfélagsmiðlum svo sem Twitter, Instagram, Facebook og Snapchat, og hvetja gesti sína til þess að deila myndum af upplifun sinni með notkun myllumerkisins #BLINDRAVEN.