Rúm og allir aukahlutir á frábæru verði
Núna er hægt að gera frábær kaup í hágæða rúmum og öllum fylgihlutum í Rúmgott, Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Allar vörur verslunarinnar eru á 30% til 70% afslætti. Rúmgott bæði selur rúm með innfluttum dýnum og framleiðir eigin dýnur hér á landi. Meðal vinsælla vara í versluninni eru hágæða hollensk rafmagnsrúm.
„Í tvíbreiðum rúmum seljum við langmest af 1,60 m stærðinni. Þeir sem hafa nóg plás kaupa King Size en af einhverjum ástæðum er 1,60 sú stærð sem við seljum alltaf mest af,“
segir Sigmundur Árnason, verslunarstjóri í Rúmgott. Verðlækkunin á útsölunni er mikil:
„Einhver sýningarrúm eru á 70% afslætti en flestar vörur eru á 30-50% afslætti. Eitt dæmi er standard svæðaskipt heilsurúm, fimm svæðaskift heilsudýna með botni og fótum, hægt að velja um 10 liti á botninn – í 1,60 x 2; venjulegt verð á slíku rúmi er 198.008 kr, sem er raunar mjög gott verð fyrir rúm í þessum gæðaflokki, – en á útsölu fer það niður í 137.906 krónur. Þetta er afskaplega fínt verð fyrir tvíbreitt heilsurúm með tvöföldu gormakerfi, styrktum köntum og mjög góðri dýnu,“
segir Sigmundur.
Allir aukahlutir eru á 30% afslætti. Má til dæmis fá mjög gott verð á heilsukoddum, sængurverum, göflum, dýnuhlífum og öllu öðru sem tilheyrir. Góðir heilsukoddar kosta frá 12.000 kr. á útsölunni og venjulegir dúnkoddar frá 8.000 kr.
Sem fyrr segir er Rúmgott til húsa að Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Verslunin er opin alla virka daga frá 10 til 18 og laugardaga 11 til 16.