fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

„Íslendingar elska þessar belgísku kartöflur“

Kynning

Reykjavík Chips slær í gegn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 13. september 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í rauninni komum við með þetta hingað heim en þrír okkar eru listamenn; leikari og tónlistarmenn, og við fengum þá hugmynd að hafa hliðarverkefni til að starfa við. Við settum þetta í framkvæmd á nýliðnu sumri og þetta hefur gengið vonum framar. Íslendingar elska þessar belgísku kartöflur,“ segir Arnar Dan, einn fimm eigenda Reykjavík Chips, Vitastíg 10, Reykjavík. Belgíu-vísunin snýst um að framreiðsluaðferðin er belgísk að uppruna en kartöflurnar eru bornar fram í kramhúsi.

Eigendur að Reykjavík Chips eru þeir Ragnar Pálmar Kristjánsson, Hermann Óli Davíðsson, Arnar Dan, Friðrik Dór og Ólafur Arnalds. Arnar Dan er leikari hjá Borgarleikhúsinu og þeir Friðrik Dór og Ólafur Arnalds eru mjög þekktir tónlistarmenn. Þrátt fyrir annir í sínum aðalstörfum leggja þessir þekktu listamenn mikla vinnu í framleiðsluna á frönsku kartöflunum sínum, ásamt félögum sínum:

„Framleiðsluferlið er margslungið og þetta er ekki eins og frönsku kartöflurnar sem þú kaupir á venjulegum hamborgarastöðum. Við leggjum megináherslu á að matreiða úrvals franskar og gerum þær frá grunni. Við fáum sendar heilar kartöflur í sekkjum frá Spáni og Hollandi og víðar, en það fer eftir árstíma þar sem kartöflur eru teknar upp einu sinni á ári. Við tökum þær inn og höldum þeim í réttu hitastigi í einhvern tíma. Síðan skerum við þær og leggjum í bleyti, skolum af þeim sterkjuna og sjóðum þær í hálftíma upp úr saltlegi til að fá seltuna inn í kartöflurnar en ekki utan á þær. Síðan steikjum við þær, kælum, steikjum þær aftur og þannig fara þær út. Þetta er nokkuð viðamikið ferli og kostar það að við gerum ekkert annað á meðan.“

Arnar segir að fólk kunni vel að meta þessa alúð sem lögð er í vinnsluna á kartöflunum og einnig það að fá hollari franskar en gengur og gerist.

„Við bjóðum upp á tvær sósur sem eru alveg vegan. Síðan notum við úrvals majónes í sósurnar okkar og yfirleitt besta mögulega hráefni sem fyrirfinnst og það er ekkert hálfkák í þeim efnum. Þú finnur þegar þú borðar þær að þetta er miklu meira en meðlæti,“ segir Arnar.

Sósurnar skipta miklu máli þegar svona belgískar, franskar kartöflur eru snæddar. Fyrir utan hina klassísku bearnaise eru ýmsar girnilegar sósur í boði:

„Langvinsælasta sósan er Samúraj sem er Chili-Mayo og graslauks- og hvítlaukssósan okkar eru líka vinsælar en þær eru léttari sósur með meira af sýrðum rjóma. Allar sósur sem við bjóðum upp á gerum við líka frá grunni á staðnum. Í þessum heimi þar sem kartöflur eru þungamiðjan er endalaust hægt að bæta við og við erum líka opnir fyrir hugmyndum frá starfsfólki okkar. Það er kannski ein af ástæðunum fyrir því að fólki finnst gaman að vinna hérna því hugmyndir þess eru vel metnar.“

Arnar segir að þeir félagar hafi haft að leiðarljósi að halda sér við sitt afmarkaða svið og vera góðir í því sem þeir gera – en láta annað liggja á milli hluta:

„Það er gott að þurfa ekki að gera allt heldur gera eitthvað eitt vel og vinna vel innan ákveðins ramma. Ef fólk vill fá sér hamborgara fer það eitthvert annað en það veit hvað það fær hjá okkur. Sérþekkingin er það sem gildir og að hver og einn einbeiti sér að sínu fagi.“

Sem fyrr segir er Reykjavík Chips til húsa að Vitastíg 10. Auk kartöfluréttanna einstöku er mikið úrval af bjór á staðnum en mörgum þykir gott að skola kartöflum af þessu tagi niður með bjór.

Opið er mánudaga til föstudaga frá 11.30 til 22.00 og laugardaga og sunnudaga frá 11.30 til 23.00.

Reykjavík Chips býður einnig upp á veisluþjónustu og starfrækir „Chips Bar“ sem er geysilega vinsæll. Þar er um að ræða færanlegan bar þar sem boðið er upp á sama úrval af veitingum og á staðnum að Vitastíg og vekur barinn mikla lukku í veislum.

Sjá nánar á rvkchips.is

Starfskraftur óskast! Reykjavík Chips óskar eftir ferskum einstaklingi til að slást í hópinn. Ef þú hefur náð 18 ára aldri og ert í leit að dagvinnu skaltu senda umsókn með ferilskrá á netfangið reykjavikchips@gmail.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni