fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

Fyrir þá sem þora að vera í skrautlegum sokkum

Kynning

Sokkaskúffan

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 7. september 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeim fjölgar sífellt sem hafa gaman af að vera í skrautlegum, fallegum og jafnvel skrýtnum sokkum, á meðan þeim fækkar sem líta á sokka sem hversdagslega nauðsyn eingöngu og klæða sig bara í svarta eða gráa sokka á hverjum morgni. Sokkaskúffan er ný og alveg stórskemmtileg vefverslun sem býður upp á feikilega mikið úrval af fallegum, litríkum og bráðsniðugum sokkum. Sambýliskonurnar Fríða Agnarsdóttir og Hulda Ólafsdóttir Klein reka Sokkaskúffuna saman, en þær stofnuðu fyrirtækið á nýliðnu sumri og er lagerinn í einu herbergi á heimili þeirra. Viðtökur hafa verið verulega góðar enda eru litríkir og skrautlegir sokkar að verða sífellt vinsælli.

„Við pössum upp á að vera ekki með einlita sokka. Við veljum bara það skrautlega. Við teljum að markaðurinn fyrir litríka vöru sé allur að lifna við. Við bjóðum upp á sokka fyrir alla, frá ungbörnum upp í harðfullorðið fólk. En í augnablikinu er stærsti markaðurinn okkar fyrir krakkasokka annars vegar og hins vegar kvensokka,“ segir Fríða í samtali við DV. Blaðamaður spyr hvort fullorðnir karlmenn séu kannski tregastir til að ganga um í litríkum sokkum. Fríða segir að það megi til sanns vegar færa en þeir séu samt allir að koma til:

„Karlmenn eru að verða opnari fyrir því að vera ekki bara í svörtum sokkum við jakkafötin. Ég hitti einn í brúðkaupi um daginn sem hafði keypt sér mjög skondna sokka frá okkur en hann sagðist ekki vera tilbúinn að klæðast þeim í brúðkaupi, frekar hversdags.“

Sokkarnir eru enn sem komið er eingöngu seldir í gegnum vefverslunina á vefsvæðinu sokkaskuffan.is. Vörur eru sendar hvert á land sem er og er lagður á lítilsháttar sendingarkostnaður. Óhætt er að segja að vörurnar séu á hagstæðu verði en lesendur geta séð það sjálfir, sem og skoðað úrvalið, með því að fara inn á sokkaskuffan.is. Þær Fríða og Hulda stefna hins vegar að því að opna sokkaverslun í framtíðinni ásamt því að reka vefverslunina áfram.

Til sölu eru líka fallegar gjafaöskjur frá sokkaframleiðandanum Oddsocks sem Sokkasúffan selur mikið af sokkum frá. Oddsocks er breskt merki en Sokkaskúffan er líka með vörur frá bandaríska framleiðandanum K.Bell og pólska fyrirtækinu Soxo.

„Þegar við Hulda fórum af stað með þetta lögðum við mest upp úr því að finna birgja sem leggja áherslu á mikil gæði og þessi merki standa öll undir nafni sem gæðamerki,“ segir Fríða.

Sokkaskúffan er til húsa að heimili Fríðu og Huldu, að Vogatungu 34, Kópavogi. Viðskiptin fara hins vegar eins og áður sagði fram í gegnum vefverslunina sokkaskuffan.is. Upplýsingar eru líka gjarnan veittar í símum 866-8246 og 617-1013.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni