Einstök stemning í hjarta miðborgarinnar
Matarkjallarinn opnaði dyrnar að kokteilklúbbi sínum á dögunum þar sem gestum var boðið að bragða á ýmsu sem barþjónar staðarins reiddu fram. Staðurinn hefur fengið dæmalaust góðar viðtökur fyrir að bjóða frábærar veitingar, hlýlegt viðmót og einstaka stemningu í hjarta miðborgarinnar.
Margt var um manninn í opnunarpartýi kokteilklúbbsins þar sem boðið var upp á lifandi tónlist, poppkorn og alls kyns veigar. Þétt var setið jafnt úti sem inni en vel fór um alla eins og meðfylgandi myndaveisla sýnir.