Trésmiðjan Stígandi var stofnuð árið 1947
Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi smíðar vandaðar líkkistur, bæði hvítar og spónlagðar með viðartegund að vali kaupanda. Kisturnar eru afgreiddar fullbúnar, fóðraðar og með kodda, sæng og blæju. Líkklæði er einnig hægt að kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru sendar daginn eftir pöntun hvert á land sem er.
Að sögn Guðmundar Arnar Sigurjónssonar, eins eigenda Stíganda, afgreiðir fyrirtækið um 30 líkkistur á ári. Flestar eru keyptar í héraðinu, einhverjar fara á Blönduós og Hvammstanga, og svo eru nokkrar afgreiddar vítt og breitt um landið, meðal annars til Reykjavíkur. Segir Guðmundur að ástæðurnar fyrir því að líkkisturnar frá þeim nái svo langt út fyrir héraðið bæði vera gott orðspor fyrirtækisins í líkkistusmíði og að verðið á þeim þyki afar hagstætt miðað við mikil gæði.
Starfsemi Trésmiðjunnar Stíganda hvílir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið var stofnað árið 1947 og hefur ávallt verið staðsett á Norðurlandi, en stofnendur þess komu þó úr Reykjavík. Í dag eru þrír starfsmenn fyrirtækisins í eigendahópnum en starfsmenn eru alls 13, meirihluti þeirra er trésmiðir.
Að sögn Guðmundar er starfsemin afar fjölbreytt en þó er sérsmíði á innréttingum mjög stór þáttur af starfseminni:
„Við erum stærsti aðilinn á svæðinu í viðhaldi og nýsmíði og því mikið leitað til okkar um alls konar verkefni. Við erum í raun þjónustufyrirtæki á vakt hér og það er feikilega mikið að gera.“
Trésmiðjan Stígandi tekur að sér allt sem við kemur byggingum og mannvirkjagerð. Á tæknivæddu verkstæði smíða starfsmenn fyrirtækisins nánast hvað sem er, allt eftir óskum viðskiptavina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og persónulega þjónustu.
Á heimasíðu Stíganda, stigandihf.is, má finna fróðlegar upplýsingar um ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður eru líkkisturnar nefndar en auk þeirra framleiðir Stígandi til dæmis mikið af fallegum og vönduðum innréttingum af ýmsu tagi. Þrautreyndir starfsmenn eru viðskiptavinum til ráðgjafar varðandi efnisval og útfærslu, en möguleikarnir eru endalausir.
Þá smíðar Stígandi tréstiga af öllum stærðum og gerðum þar sem nýtt er í senn nýjasta tækni og dýrmæt reynsla iðnmeistara fyrirtækisins af gömlu handbragði.
Enn fremur framleiðir Stígandi sumarhús og smáhýsi til flutnings hvert á land sem er. Meðal annars eru í boði svokölluð hraðhús, sem eru 55 fermetra, byggð úr tveimur einingum sem eru smíðaðar á starfssvæði Stíganda og fluttar á byggingarstaðinn ásamt forsteyptum undirstöðum. Auðvelt er að bæta þriðju einingunni við hvenær sem er og stækka húsið þar með upp í 82 fermetra.
Trésmiðjan Stígandi
Húnabraut 29, Blönduósi
Sími: 452-4123
Netfang: gummi@stigandihf.is
Heimasíða: www.stigandihf.is