Fagnar 67 ára afmæli í ár – Var stofnuð 29. júní árið 1949
Sendibílastöðin hf. var stofnuð 29. júní árið 1949. Hún var upphaflega staðsett að Ingólfsstræti 11 en flutti svo í Borgartún 21 árið 1956. Í dag er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur verið síðan 1999.
Sólveig Þóra Jónsdóttir framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf., segir að á staðnum sé einkarekið mötuneyti fyrir bílstjórana og einnig er í boði kaffi og meðlæti allan daginn. „Andrúmsloftið er gott og menn hittast hér og rabba, spila bridge og tefla þegar tími gefst til. Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er mikið að gera.“
„Rekstur sendibílastöðva er með allt annan grundvöll í dag en áður var. Árið 2002 komu ný lög/reglugerðir varðandi að ekki var lengur skylda fyrir sendibílstjóra að vera á viðurkenndri sendibílastöð – eins og alltaf hafði verið. Auk þess var sendibílastöðvum bannað að gefa út hámarksgjaldskrá. Við fengum undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því hámarksgjaldskrá er til verndar viðskiptavininum,“ segir hún.
Bílar hafa stækkað í gegnum tíðina og eru þeir burðarmeiri enda kallar markaðurinn á það. Ný tæki hafa komið til sögunnar sem létta bílstjóranum vinnuna, t.d. rafmagnsbrettatjakkar og rafmagnströpputrillur.
Að sögn Sólveigar flytur Sendibílastöðin allt frá umslögum upp í stórflutninga.
„Við erum með bíla allt frá fimm rúmmetrum upp í tæplega 50 rúmmetra burðargetu; allt að 10 tonnum. Sumir eru með vagna aukalega sem eru um 50 rúmmetrar þar sem burður er allt að 13 tonnum. Einnig höfum við aðgang að krana og búslóðalyftum sem ná allt að 50 metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“
„Trúin flytur fjöll við flytjum allt annað,“ segir Sólveig brosandi. „Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjónum bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Á Sendibílastöðinni starfa tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls 62 bílstjórar.
Sendibílstjórarnir eru allir sjálfstæðir verktakar með sameiginlega símaþjónustu varðandi úthlutun túra og innheimtu reikninga þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á Sendibílastöðinni.“
Aðspurð segir Sólveig að það skrýtnasta sem fyrirtækið hefur flutt til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var uppstoppaður, sem betur fer,“ segir hún hlæjandi.
„Annars er ekkert sem við neitum að flytja svo framarlega að farmurinn komist í bílana og allt sé löglegt. Við höfum hingað til ekki lent í því að þurfa að neita viðskiptavini um flutning.“
Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1, 104 Reykjavík.
Símar: 553 – 5050 og 533 – 1000.
www.sendibilastodin.is