Gróðurhús á viðráðanlegu verði
Það er draumur margra með græna fingur að eignast sitt eigið gróðurhús og nú getur sá draumur orðið að veruleika: SMH Gróðurhús ehf. býður upp á vönduð gróðurhús á afar hagstæðu verði. Ósamsett hús kostar aðeins 125.000 krónur en mögulegt er að fá húsið sett saman og því ekið á áfangastað Gróðurhúsið er úr sterku áli. Það er með 4 mm holplast sem er 800 að þéttleika. Plastið fer inn í raufar og er vel gengið frá því. Hægt er að kítta plastið að innan og utan til að festa það enn betur.
Gróðurhúsið er 3,10 m að lengd, 2,50 m að breidd og 1,95 m á hæð. Það er ósamsett en eins og fyrr segir er hægt að fá það sett saman, eða gera það sjálf.
Hægt er að koma á staðinn og skoða sýningarhús. Upplýsingar og tímapöntun í síma 866 9693. eða með tölvupósti á netfangið smhgrodurhus@gmail.com