Kvenmenn vilja síður karlmenn með snúð í hárinu
Ný bresk rannsókn hefur leitt í ljós að karlmenn sem klæðast þröngum gallabuxum og jakkafatajakka eru líklegri til að finna ástina á netinu. Þá eiga konur einnig meiri möguleika á að finna ástina, ef þær klæðast íþróttafötum.
Karlmenn sem notast stefnumótaforrit á borð við Tinder séu minnst að pæla í hári kvenna og sömuleiðis virðast konur ekki vera tiltölulega hrifnar af því að menn séu með snúð í hárinu, eða svokallaðan „man bun.“ Þá sögðust 38 prósent kvenna að blár litur væri mest aðlaðandi á karlmönnum á meðan karlkyns þáttakendur í könnuninni nefndu flestir rauðan lit.
„Hér áður fyrr, mótaðist skoðun fólks á því hvernig viðkomandi kemur fyrir á fyrsta stefnumóti. Í dag ræðst þetta af þeim myndum sem þú setur á prófílinn þinn,“ sagði stílistinn Chantelle Znideric um niðurstöðu rannsóknarinnar.
Í könnuninnni, sem framkvæmd var af símarisanum HTC kom einnig í ljós að 24 prósent einstaklinga halda reikningi sínum virkum á stefnumótarsíðum og –forritum, janfvel eftir að hafa farið í ástarsamband.