Laugardag 28. maí frá kl. 13 – 17
Yfir 20 listamenn sem reka sameiginlegar vinnustofur í Auðbrekku 6, Kópavogi, ætla að opna vinnustofur sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 28.maí.
Listamennirnir í Auðbrekku er fjölbreyttur hópur karla og kvenna. Verkin endurspegla fjölbreytileikann og því ættu allir listunnendur og fagurkerar að geta skoðað eitthvað við sitt hæfi.
Nánari upplýsingar má finna á sameiginlegri facebook síðu hópsins.
Vinnustofurnar verða opnar frá 13:00 – 17:00 þann dag og eru allir velkomnir. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.
Nánari lýsing á staðsetningu.
Vinnustofurnar eru sem fyrr segir í Auðbrekkunni, í sama húsnæði og verslunin Normex.
Gengið er á bakvið hús og eru stofurnar á annarri og þriðju hæð.