fbpx
Fimmtudagur 24.apríl 2025
FókusKynning

Harpa útfararstofa: Persónuleg og nærgætin þjónusta

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. maí 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég var búin að horfa á þetta starf úr fjarska í tíu ár áður en ég gerðist útfararstjóri. Mér þótti þetta vera virðulegt og fallegt starf. Ég efast um að nokkuð hafi komið mér á óvart. Þetta er vissulega erfitt og krefjandi – en getur líka verið afar gefandi.“

Þetta segir Harpa Heimisdóttir, eigandi Hörpu útfararstofu, Kirkjulundi 19, Garðabæ. Stofan var stofnuð árið 2014 og er eina útfararstofan í Garðabæ. Harpa þjónar öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt nærsveitum ef þess er óskað. Harpa er eini starfsmaður stofunnar í fullu starfi en auk þess nýtur hún aðstoðar þegar á þarf að halda.

Blaðamaður verður þess áskynja að Harpa hefur fundið sinn rétta stað í tilverunni, ef svo má að orði komast, með því að gerast útfararstjóri, og hún starfar af hugsjón. Starfið er vandasamt því ekki er rúm fyrir mistök:

„Þetta er afar viðkvæm þjónusta þar sem ekkert má fara úrskeiðis. Þegar andlát ber að höndum verð ég með vissum hætti hluti af hinni syrgjandi fjölskyldu sem kemur saman og ræður ráðum sínum, í gegnum kistulagninguna og útförina,“ segir Harpa, en traust og nærgætni eru meðal lykilþátta í starfinu:

„Fólk verður að geta treyst manni og maður tengist því persónulegum böndum. Besta staðfestingin á því að maður sé að gera rétt finnst mér vera þegar fólk leitar til mín aftur um útfararþjónustu.“

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Harpa útfararstofa notar meðal annars vistvænar líkkistur sem smíðaðar eru hérlendis og hannaðar af íslenska líkkistusmiðnum Þorsteini B. Jónmundssyni. Þær þykja fallegar, eru ekki málaðar heldur fær viðurinn að njóta sín.

Þess má geta að Harpa útfararstofa gefur alla vinnu við fósturlát og lát ungbarna.

Ítarlegar og aðgengilegar upplýsingar um þjónustuna er að finna á heimasíðu útfararstofunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb