Einungis handþvottur – engir kústar eða burstar
Bón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bílaþvottastöð að Grjóthálsi 10, við hliðina á Skeljungi við Vesturlandsveginn. Að sögn Ara Rafns Vilbergssonar framkvæmdastjóra var Bón- og þvottastöðin fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöðin á Íslandi en hún var stofnuð árið 1968. Stöðin hóf reksturinn í Sóltúni og var þar samfleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins 2007.
„Í boði hjá okkur er öll sú meðferð sem nýtist best til þess að þrífa bílinn og bóna hann af natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur, handþvottur, bón og þurrkun á sjö mínútum,“ segir Ari. „Bílaþvotturinn er allur unninn í höndunum með svömpum, bón er síðan sett á bílinn og loks þurrkað með míkrófíber klútum ásamt því að þurrkað er úr fölsum bílanna. Við leggjum einungis stund á handþvott sem við teljum veita besta árangurinn og notum hvorki kústa né bursta.“
„Bón- og þvottastöðin tók nýlega í notkun glænýja bónaðferð sem kallast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Ari.
„Um er að ræða þá skemmtilegu viðbót að fá allsherjar bón á bílinn sem endist mun lengur og veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og byltingarkennd aðferð við að bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum vegg af þykku lagi af bóni sem rennur í alla króka og kima á bílnum auk þess sem litadýrðin gleður augað.“
„Algjörir snillingar og frábær þjónusta.“
„5 stjörnu þvottastöð!“
„Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn sjálfur …“
„Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glampandi hreinan bíl hjá þessum snillingum!“
Bón og þvottastöðin
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
Sími: 588-1010
Opnunartími: Virka daga: 8.00–18.00, laugardaga: 10.00–16.00