Hárlaus píka og risastór limur
Sænska ríkissjónvarpið SVT hefur neyðst til að senda frá sér afsökunarbeiðni eftir að áhorfendur gagnrýndu harðlega tölvuteikningar af nöktu fólki sem notaðar voru til að útskýra skort á B-12 vítamíni og kviðslit.
Myndirnar umdeildu birtist í þættinum Fråga doktorn, eða spurðu lækninn, sem hefur verið um langt skeið á dagskrá sjónvarps þar í landi. Í þættinum útskýra læknar ýmiss konar heilsufarsvandamál á mannamáli.
Það sem fór fyrir brjóstið á áhorfendum, og þeir tjáðu sig um á Twitter í kjölfar útsendingar, var stærðin á brjóstum konunnar, hárleysi píku hennar, og gríðarstærð getnaðarlims hins tölvuteiknaða karlmannsins. Áhorfendum reiknaðist til að limurinn hefði verið um 27 cm, sem telst vera vel yfir meðaltalinu.
Sænska sjónvarpið birti eftirfarandi yfirlýsingu:
„Gagnrýni ykkar er réttmæt. Við höfum ekki verið ánægð með teikningarnar sjálf, og höfum nú ákveðið að nota þær ekki í næstu þáttaröð. Við vonum að þið hafið ekki tapað traustinu til okkar, og að þið haldið áfram að horfa á þáttinn.“