Fyrirtækin IGS og Airport Associates á Keflavíkurflugvelli bæta við flotann
Fyrirtækið Íslyft og Steinbock þjónustan ehf. afhentu nú í vikunni sex nýja Goupil-rafmagnsbíla til IGS og Airport Associates á Keflavíkurflugvelli. Fyrir eiga þessi fyrirtæki meira en 20 Goupil-bíla.
Að sögn Péturs Svavarssonar sölumanns er Íslyft líklega það fyrirtæki sem hefur selt einna flesta rafmagnsbíla á íslenska markaðnum en fyrirtækið selur rafmagnsbíla frá Goupil, Melex og Linde.
„Þessir bílar eru notaðir t.d. í álverksmiðjum, af bæjarfélögum, kirkjugörðum, í þjónustu á flugvöllum og víðar,“ segir hann.
Pétur segir að Goupil, sem er franskur framleiðandi, hafi verið stofnað árið 1996 af tveimur rafmagnsverkfræðingum.
„Eftir mikla vinnu hjá þeim við að útfæra bílinn kom fyrsti G3-bíllinn í almenna sölu árið 2001. Síðan þá hefur vöxtur fyrirtækisins verið ótrúlegur, hann hefur verið um 40% á ári. Árið 2011 keypti bandaríska fyrirtækjasamsteypan Polaris Industries Goupil. Goupil er samt sem áður rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. Yfir fimm þúsund Goupil bílar eru í notkun í dag.
„Hægt er að fá Goupil-bílana í ýmiss konar útfærslum, s.s. með föstum eða sturtanlegum palli, háþrýsti- eða vökvunardælum, fyrir ruslsöfnun, kössum með rennihurðum o.m.fl. Einn af mörgum kostum Goupil er mikil burðargeta sem er allt að 700 kíló á palli og getur hann dregið þriggja tonna kerru. Í boði er tveggja ára ábyrð. Valið stendur um nokkrar stærðir af rafgeymum sem alla er hægt er að hlaða í 16A raftenglum. Rafgeymar eru með fjögurra ára ábyrgð/1.500 hleðslur og hægt er að keyra allt að 120 kílómetra á einni hleðslu. Í bílunum eru sýrurafgeymar með sjálfvirkri vatnsáfyllingu,“ segir Pétur.
Boðið er upp á mislangar og breiðar útgáfur með keyrsluhraða allt að 40 kílómetrum. Beygjuradíus er aðeins 3 metrar.
Einnig er Goupil nú fáanlegur í raf-hybrid útgáfu.
Íslyft og Steinbock þjónustan ehf. hafa verið markaðsráðandi í sölu á lyfturum á Íslandi og verið söluhæst í hefðbundnum rafmagns- og dísillyfturum sl. 20 ár. Fyrirtækið er þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu.
Íslyft og Steinbock þjónustan ehf
Vesturvör 32,
200 Kópavogur
Sími: 564-1600
www.islyft.is
islyft@islyft.is