fbpx
Þriðjudagur 04.febrúar 2025
FókusKynning

Gamla kaffihúsið: Krúttlega kaffihúsið í hverfinu

Kynning

Ljúffengar steikur- Kökuhlaðborð á sunnudögum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 19. mars 2016 12:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamla kaffihúsið er hlýlegur staður í Drafnarfelli í Breiðholti. Unnur Arna Sigurðardóttir, einn eigenda þess, er ákaflega ánægð með frábærar móttökur viðskiptavina.

„Það var brýn þörf á að fá gott kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið og rólegt svæði. Hér býr mikið af fólki og alls ekki allir sem vilja fara niður í bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla og finnst notalegt að setjast inn hjá okkur,“ segir hún. „Það hefur vakið mikla lukku að við bjóðum einnig upp á mat og við erum t.d. alltaf með tvær mismunandi gerðir af súpum í hádeginu og fínan salatbar. Þannig að það má segja að við séum nokkur konar bistró. Hádegismatartíminn stendur yfir frá kl. 12.00–14.00.“

Ljúffengar steikur

Unnur segir að matseðillinn sé ekki stór en sætur og með sérvöldum, bragðgóðum réttum. „Gestir hafa verið afar hrifnir af eðalbrauðunum okkar en þau er tvisvar sinnum stærri en hefðbundin rúnstykki og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða mínútusteik.

Eftir kl. 18.00 eru síðan á boðstólum ljúffengar steikur; nautasteik með bernaise- eða piparsósu og fær fólk sér þá gjarnan rauðvínsglas með máltíðinni og röltir svo satt og sátt heim til sín, í göngufæri.
Gamla kaffihúsið okkar er heimilislegt og fólki finnst þægilegt að setjast niður hér og lesa eða spjalla við vinalegan þjóninn. Við erum með bókahillu sem fólk getur seilst í og lesið. Fólk getur bæði tekið bækur og gefið þær sem það hefur lesið og vill að aðrir njóti.“

Kökuhlaðborð á sunnudögum

„Á sunnudögum er alltaf kökuhlaðborð hjá okkur upp á gamla móðinn á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar aðeins 2000 kr. og er kaffi þá innifalið. Þetta er nokkuð sem fólk hefur saknað og þykir dásamlegt að geta tekið upp þennan skemmtilega gamla sið að fara í kaffihlaðborð á sunnudagseftirmiðdögum,“ segir Unnur og brosir hlýlega um leið og hún kemur því á framfæri að hún þakki innilega fyrir frábærar móttökur gesta.

Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík. Sími: 511 – 1180.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ