Staðurinn hefur átt mikilli velgengni að fagna allt frá fyrsta degi. Eigandinn, Adam Anbari, er þakklátur fyrir frábærar móttökur viðskiptavina og mun opna annan stað eftir rúman mánuð, nánar tiltekið í Ármúla. „Nágrannarnir okkar kunnu strax að meta pizzurnar og það var fljótt að fréttast. Adams pizza er vinalegur fjölskylduveitingastaður í íbúðahverfi og margir koma til þess að borða hjá okkur eða taka mat með sér heim,“ segir hann.
„Við höfum átt því láni að fagna að vera með fullt af fastakúnnum frá upphafi. Það verður líka spennandi að opna í Ármúla og við erum núna á fullu að smíða og standsetja nýja staðinn.“
Adam segist vera með tilboð í hverjum mánuði, pizza mánaðarins, en þá er ein pizza tekin af matseðli og seld á hálfvirði.
„Þetta hefur reynst mjög vinsælt því fólki gefst þá frekar kostur á að prófa nýja pizzutegund og smakka eitthvað nýtt. Staðurinn okkar er sá eini sinnar tegundar á Íslandi sem er reglulega með svona tilboð á pizzum af matseðli.“
Umsagnir ánægðra viðskiptavina á Facebook síðu Adams pizza & grill:
„Geggjaðar pizzur og frábærar pepperonibrauðstangir!“
„Pizzurnar hjá Adam eru mjög góðar og á fínu verði líka. Mæli hiklaust með þessum stað.“
„Ljúffengar þunnbotna eldbakaðar pizzur, frábær þjónusta og endalaust gott og glaðlegt viðmót frá starfsfólkinu. Hver þarf pizzastaðakeðjur þegar Adam’s pizza er í hverfinu? “
Adams Pizza, Seljabraut 54, s: 553 – 5050
Opnunartímar: 11.00 – 23.00 alla daga. www.adamspizza.is adamspizza@adamspizza.is