fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
FókusKynning

Verkfræðistofan Vista á stórsýningunni Verk og vit

Kynning

„Við hjá Vista veitum ráðgjöf um mæli- og eftirlitskerfi og um hagnýta notkun þeirra,“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. mars 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkfræðistofan Vista sýnir á bás A6 á stórsýningunni Verk og vit 2016 og leggur aðaláherslu á orkueftirlit, orkusparnað og sjálfvirk mælikerfi. Fyrirlestur Vista um orkumál á Verk og vit 2016 verður haldinn föstudaginn 4. mars, kl. 14.00.

Sjálfvirk eftirlitskerfi frá Verkfræðistofunni Vista

Að sögn Andrésar Þórarinssonar, framkvæmdastjóra Verkfræðistofunnar Vista, rekur Vista umfangsmikið eftirlitskerfi sem sækir mælingar í sjálfvirk mælikerfi á Íslandi og frá viðskiptavinum um allan heim.

„Við hjá Vista veitum ráðgjöf um mæli- og eftirlitskerfi og um hagnýta notkun þeirra,“ segir hann. „Tilgangurinn er alltaf að lækka rekstrar- og orkukostnað. Það að nota orku og búnað sem ekki nýtist neinum er að sóa fjármunum fyrirtækisins.“

Með mælingum má finna óþarfa orkunotkun og aðra rekstrarþætti sem spora úr.

Verkfræðistofan Vista hefur langa reynslu í byggingu og rekstri hvers konar stjórn- og mælikerfa sem annast eða fylgjast með tækjabúnaði. Vista gerir úttekt á orkukerfum, gerir tillögur um eftirlit, setur upp búnað og rekur, býður einstaklega góða upplýsingaþjónustu fyrir orkugögn og veitir ráðgjöf um orkusparnað.

GERVIGRASVELLIR

Gervigrasvellir sem eru upphitaðir nota mjög mikið heitt vatn. Algengt er, þegar upphitun er sem mest, að einstaka gervigrasvöllur noti meira heitt vatn en fimm stórir framhaldsskólar samanlagt. Það er því mikið hagsmunamál að draga jafnskjótt úr heitavatnsnotkun og snjór bráðnar eða hlýna tekur. Algengasti ágalli í upphitun gervigrasvalla er mikil upphitun sem stendur lengur yfir en þörf er á. Hér skiptir máli að hafa sérhæft stjórnkerfi sem ræður við alla duttlunga upphitunar og sjálfvirkt orkueftirlit þannig að auðveldlega megi sjá hvort upphitunarkerfið sé vel stillt og í lagi eða hvort bregðast þurfi við bilunum.

SUNDLAUGAR

Vatnsnotkun í sundlaugarkerfum er í eðli sínu að miklu leyti ósýnileg og vanstilling sjálfvirkra kerfa er því einnig að mestu leyti ósýnileg. Meðal vanstillinga sem þekkjast eru sírennsli, óstöðug hitareglun, óþarfa upphitun, sveiflukennd vatnsnotkun, rekstur kerfa utan opnunartíma og fleira í þessum dúr.

KÆLAR OG FRYSTAR Í MATVÖRUBÚÐUM

Matvörubúðir eru oft með umfangsmikil kæli- og frystikerfi fyrir matvæli, sem eru ætíð í gangi. Þessi kerfi þurfa sitt eftirlit því margt getur brugðist; hitastig er óstöðugt, afhríming breytist, hitastig er að jafnaði of hátt eða of lágt. Bilun í kæli eða frysti getur orðið kostnaðarsöm; bæði út frá töpuðum matvælum og eins vegna álitshnekkis.
Vista er með í rekstri umfangsmikið eftirlitskerfi sem er sérhannað fyrir matvörubúðir. Stofan gerir tillögu um allan búnað, setur hann upp og rekur í samstarfi við umsjónarmenn.

FRÁVEITUKERFI

Vista, ásamt samstarfsaðilum, tekur að sér umsjón með fráveitukerfum af öllum stærðum.
Öruggur rekstur fráveitukerfa er forgangsmál allra bæjarfélaga. Vista, ásamt samstarfsaðilum, tekur að sér umsjón með fráveitukerfum af öllum stærðum.

Öruggur rekstur fráveitukerfa er forgangsmál allra bæjarfélaga. Mikilvægur þáttur fráveitu eru dælustöðvar og yfirföll. Vista hefur áratugareynslu af rekstri fráveitukerfa og annast ásamt samstarfsaðila fráveitukerfi nokkurra stærstu bæjarfélaga landsins. Dælustöðvar og yfirföll eru oftast þannig staðsett að fjareftirlit er forsenda fyrir áfallalausum rekstri.

Vista, ásamt samstarfsaðilum, tekur að sér umsjón með fráveitukerfum af öllum stærðum, þ.e. reglulegt eftirlit með öllum búnaði, viðhald og viðgerðir. Vista setur upp stjórnkerfi og endurbætir eldri kerfi, setur upp fjareftirlit og vinnur með umsjónarmönnum fráveitukerfa.

UMHVERFISMÆLISTÖÐVAR

Umhverfismælistöðvar mæla ýmsa þætti í andrúmsloftinu, algengir eru H2S, SO2, ryk af ýmsum stærðarflokkum og NO, NOx og NO2. Það er afar gagnlegt að hafa veðurstöð sem hluta af búnaði umhverfismælistöðvar því þá má sjá úr hvaða átt viðkomandi mæliþáttur kemur. Ekki er óalgengt að sjá að H2S kemur úr einni átt, SO2 úr annarri og ryk úr þeirri þriðju.

Vista útvegar allan búnað til umhverfismælistöðva og hefur nokkra samstarfsaðila með sérþekkingu á innra lífi mælitækjanna. Boðið er upp á alla gagnaþjónustu í gegnum gagnvirkar vefsíður.

„Að lokum viljum við vekja athygli á nýrri heimasíðu, orkueftirlit.is,“ segir Andrés Þórarinsson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofunnar Vista.

Verkfræðistofan Vista ehf., Lynghálsi 9, 110 Reykjavík. Sími: 587-8889. Fax: 567-3995. Netfang: vista@vista.is,
www.vista.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“