fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
FókusKynning

Íslandslyftur kynna nýjung á Verk og vit-sýningunni

Kynning

Heimalyftur teiknaðar af hönnuðum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. mars 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandslyftur bjóða upp á alla almenna lyftuþjónustu sem og sölu- og þjónusturáðgjöf á margvíslegum útfærslum nýrra lyfta á borð við fólkslyftur, vörulyftur, sérhannaðar lyftur, hjólastólalyftur, þjónustulyftur og lyftur í heimahús. Fyrirtækið býður upp á vörur frá þekktum framleiðendum eins og t.d. Kleemann, Aritco og Liftup. Íslandslyftur bjóða einnig upp á endurnýjun á eldri lyftum, uppsetningu aukabúnaðar og eftirlits- og viðgerðaþjónustu.

Helgi Skúli Helgason, eigandi Íslandslyfta, segir að fyrirtækið sé að kynna nýjung til sögunnar en það er sýningarsalur sem verður til staðar í húsnæðinu að Vesturhrauni 3 í Garðabæ. „Við verðum á sýningunni Verk og vit um helgina og þar getur fólk fengið að upplifa aðstöðuna sem verður í salnum okkar,“ segir hann.

Í boði að prófa lyftu á sýningunni

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

„Sætalyfta sem fólk getur prófað er uppsett í nýja sýningarsalnum okkar. Fram að þessu hefur enginn annar þjónustuaðili í okkar geira boðið upp á aðstöðu þar sem hægt er að taka á móti viðskiptavinum og sýna þeim notkunarmöguleika lyftanna á staðnum. Einstaklingar vilja fá tilfinningu fyrir því sem þeir eru að kaupa, fyrir þá eru þetta stór innkaup; í raun mikilvæg fjárfesting til persónulegra nota. Við ætlum okkur að verða brautryðjendur hvað þessa upplifun varðar. Við getum svo boðið hópum hingað í sýningarsalinn, t.d. eldri borgurum, arkitektum, hönnuðum, bygginagaraðilum o.fl. Á sýningunni Verk og vit verðum við m.a. með lyftuklefa hefðbundinnar lyftu, mjög flotta klefa, og tröppulyftuna svokölluðu en hún er ekki með skábraut heldur lyftir lóðrétt upp. Mörgum sem nota hjólastóla finnst skábrautin óþægileg,“

segir Helgi.

Heimalyftur teiknaðar af hönnuðum

Að sögn Helga eru Íslandslyftur einnig með vörur frá sænska fyrirtækinu Aritco sem mun vera fremst í heiminum í „design“ lyftum í heimahús. „Þeir voru að koma með nýja vörulínu sem er mjög vinsæl í íbúðarhúsnæði og eldri byggingar, t.d. verslunar- og skrifstofuhúsnæði, opinberar stofnanir, skóla o.fl. Til að koma slíkri lyftu fyrir þarf bara gat á milli hæða og ekki þarf að smíða lyftustokk eða annað slíkt. Menn mikla oft fyrir sér að þurfa að búa til gryfju fyrir lyftuna en við komum s.s. og setjum hana bara upp, ef rýmið er fyrir hendi. Við verðum með svona heimalyftu í sýningarsalnum fyrir fólk til þess að skoða,“ segir Helgi sem vonast til að sjá sem flesta í sýningarsal Íslandslyfta á sýningunni Verk og vit.

Íslandslyftur ehf. Vesturhraun 3, 210 Garðabæ. Sími: 568-7600

Ítarlegar upplýsingar vörur og þjónustu er að finna á heimasíðunni www.islandslyftur.is

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“