Sérstakt konudagstilboð á sunnudaginn
Snyrtifræðingarnir Gyða Agnarsdóttir og Sólrún Pétursdóttir eru eigendur snyrti- og dekurstofunnar Deluxe. Auk þeirra starfar á stofunni Valgerður Ósk Daníelsdóttir, snyrtifræðingur, sem sérhæfir sig í Sleek Brow, en það er mjög vinsæl þykkingarmeðferð fyrir augabrúnir þar sem hárum er bætt inn í brúnirnar.
„Við bjóðum upp á mjög fjölbreytt úrval snyrtimeðferða jafnt fyrir konur sem karlmenn,“ segja stöllurnar. „Við notum einungis hágæðavörur í andlitsmeðferðum sem hannaðar eru af húðlækni. Við þurftum að sækja námskeið og fá sérstakt diplóma til að öðlast leyfi til þess að nota vörurnar á stofunni okkar. BB kremið okkar hefur algjörlega slegið í gegn og er vinsælasta varan okkar.“
„Við ætlum að bjóða upp á sérstakt konudagstilboð á sunnudaginn og þá verðum við með auka opnunartíma frá kl. 10.00 – 18.00 og tökum vel á móti þeim sem vilja kaupa gjafabréf í tilefni konudagsins.
Rósavöndur frá Dalíu Blómaverslun fylgir öllum gjafabréfum á konudaginn en sú verslun er einmitt staðsett hér í Glæsibæ. Í boði eru tvenns konar gjafabréf, létt andlitsbað ásamt litun og plokkun, eða hand-og fótsnyrting þar sem við veitum fullkominn lúxus með vörunum okkar frá Moroccan oil sem inniheldur Argan-olíu sem er einstaklega nærandi og góð fyrir húðina.
Dekraðu við ástina á Konudaginn með þessum lúxus gjafabréfum
Markmið okkar er veita öllum sem til okkar koma góða slökun og flestum meðferðum fylgja slakandi heitsteinanudd,“ segja snyrtifræðingarnir Gyða Agnarsdóttir, Sólrún Pétursdóttir og Valgerður Ósk Daníelsdóttir.