Stórsýning Ford atvinnubíla verður haldin í Brimborg laugardaginn 20. febrúar milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6. Til sýnis verða Ford F-350 pallbílar, Ford Transit Connect, Ford Transit Custom og Ford Transit Van sendibílar ásamt 18 sæta Ford hópferðabílum. Ford atvinnubílar hafa verið í fararbroddi í yfir 50 ár og á síðasta ári var Ford stærsta merkið í flokki atvinnubíla í Evrópu.
Á meðal þeirra bíla sem verða í sviðsljósi er Ford F-350 pallbíllinn í stórglæsilegri Platinum útfærslu.
Ford F-350 Super Duty 4×4 Crew Cab er með 6,7 lítra Powerstroke V8, 440 hestafla dísilvél og 6 þrepa sjálfskiptingu. Togkrafturinn er heilir 1166 Nm.
Ford Transit sendibílar eru meðal vinsælustu sendibílum Evrópu. Þeir hafa unnið til fjölmargra verðlauna enda harðgerðir, sparneytnir og þekktir fyrir lága bilanatíðni. Bluetooth, olíumiðstöð með tímaliða (standard heitir á morgnana) og brekkubremsa er hluti af ríkulegum staðalbúnaði allra Ford Transit sendibíla.
Breidd Transit sendibíla línunnar er gríðarlega mikil eða frá 2,9 m3 hleðslurými í Transit Connect upp í 15,1 m3 í Transit Van. Flestir Transit bílarnir eru framhjóladrifnir en þeir sem bjóða upp á meiri burð eru afturhjóladrifnir. Transit Van er fáanlegur fjórhjóladrifinn AWD. Kíktu til okkar því það er meiri líkur en minni að við eigum rétta sendibílinn fyrir þig.
Ford Transit hópferðabílar eru í boði bæði 15 og 18 sæta. Líkt og með Transit sendibílana er mjög góð reynsla af Ford hópferðabílum. Þeir eru mjög vel búnir og má þar nefna hillur í lofti fyrir farangur, Bluetooth og olíumiðstöð með tímaliða (standard heitir á morgnana).
Áhugasömum er boðið að kíkja í heimsókn á laugardaginn og kynna sér breitt úrval Ford atvinnubíla.
**Morgunkaffi í næstu viku
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í næstu viku (23.- 25. febrúar) bjóðum við jafnframt til morgunkaffis frá kl. 7.30 til 9. Ráðgjafar taka á móti áhugasömum og að sjálfsögðu verður reynsluakstur í boði ásamt rjúkandi kaffi og bakkelsi.
Nánari upplýsingar um atvinnubílana má nálgast hér