fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
FókusKynning

Góð ráð við brjóstsviða

Sum kunna að hljóma nokkuð undarlega – Þrálátur brjóstsviði getur leitt til krabbameins

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. febrúar 2016 16:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brjóstsviði getur verið mjög hvimleiður og margir þjást af honum á hverjum degi, sérstaklega í kjölfar máltíða. Sumir taka óþægindunum sem hverju öðru hundsbiti og eru orðnir vanir því að brjóstsviðinn sé einfaldlega fylgifiskur þess að borða. Langvarandi, þrálátur brjóstsviði getur þó haft slæmar afleiðingar og í verstu tilfellunum getur hann leitt til krabbameins í vélinda. Það er því til þess vinnandi að reyna að draga úr honum með öllum tiltækum ráðum og það þarf alls ekki að vera flókið. Til eru nokkrar einfaldar leiðir sem hægt er að notast við til að draga úr brjóstsviða. Sumar þeirra kunna að hljóma undarlega, en virka engu að síður, ótrúlegt en satt.

Borðaðu lakkrís

Eins undarlegt og það kann að hljóma þá getur það að japla á lakkrís dregið úr brjóstsviða. En vert er að taka fram að ekki er æskilegt að innbyrða mikið af lakkrís í þeim tilgangi. Lakkrís er reyndar talinn hafa jákvæð áhrif í baráttunni við ýmsa kvilla í meltingarveginum, eins og magasár, bólgur og brjóstsviða.

Drekktu Aloe vera-safa

Að drekka safa úr plöntunni hefur róandi áhrif á vélindað og dregur úr ertingu. Aloe vera er því góð lausn við slæmum brjóstsviða. Hægt að kaupa safann tilbúinn til drykkjar úti í búð, eða kreista hann sjálfur úr plöntunni og blanda með vatni eða ávaxtasafa.

Ekki leggjast strax

Margir hafa ríka þörf fyrir að leggjast niður og hvíla sig eftir stóra máltíð. Leggjast á meltuna, eins og sagt er. En með því ertu í raun að auka líkurnar á slæmum brjóstsviða til muna. Best er að borða tveimur eða þremur tímum áður en lagst er út af. Þá gefst meltingarfærunum tími til að melta matinn og sýrustigið í maganum nær að lækka.

Drekktu sódavatn

Hér er um að ræða gamalt húsráð við brjóstsviða. Að setja örlítið af matarsóda út í fullt glas af vatni og drekka í einum teig. Mikilvægt er að nota ekki of mikið af sódanum því hann getur valdið ógleði sé hans neytt í miklu magni.

Tyggðu tyggjó

Flestum þykir gott að tyggja tyggjó en það eru kannski færri sem vita að það að tyggja sykurlaust tyggjó getur dregið úr brjóstsviða. Þegar þú tyggur tyggjó þá eykst munnvatnsframleiðslan til muna og þú kyngir oftar. Samkvæmt rannsóknum hefur það góð áhrif á hreinsun vélindans og minnkar líkur á því að magasýrur komist þangað upp. Fáðu þér endilega sykurlaust tyggjó eftir stóra máltíð og tyggðu í hálftíma, til að koma í veg fyrir brjóstsviða.

Bíddu með ræktina

Eftir stóra og þunga máltíð gætu margir fengið samviskuvit og brugðið á það ráð að drífa sig í ræktina. Það væru hins vegar mikil mistök. Að hreyfa sig mikið innan við tveimur tímum eftir að maður borðar er ávísun á brjóstsviða. Hreyfingin veldur því að magainnihaldið þrýstir á vöðvana á milli magans og vélindans og vill troðast þangað upp með tilheyrandi óþægindum.

Hækkaðu undir höfðinu

Það kann að hljóma undarlega en það að hækka undir höfðinu í rúminu gæti hjálpað til í baráttunni við brjóstsviða. Lausnin er þó ekki að hrúga fleiri koddum undir höfuðið heldur er betra að setja eitthvað undir dýnuna sjálfa. Miðaðu við að höfuðið og brjóstkassinn séu í hærri stöðu en fæturnir.

Borðaðu engifer

Engifer er auðvitað allra meina bót og hefur verið notaður í baráttunni við ýmsa kvilla í gegnum tíðina. Og í ljós hefur komið að neysla á því virðist draga úr líkum á brjóstsviða.

Ekki vera í þröngu

Það getur í alvöru skipt sköpum þegar kemur að brjóstsviða, hverju þú klæðist. Föt sem þrengja að líkamanum virðast nefnilega ýta undir brjóstsviða. Best er að gefa sér góðan tíma til að setjast niður og borða í rólegheitunum, í þægilegum fötum. Það dregur úr líkum á brjóstsviða.

Forðastu þessi matvæli

Svo er auðvitað líka hægt að grípa til þess ráðs að forðast matvæli sem ýta undir brjóstsviða. Þrátt fyrir að neðangreind matvæli ýti undir brjóstsviða þá er ekki þar með sagt að allir séu jafn viðkvæmir fyrir öllu því sem er á listanum.

Sítrusávextir
Koffíndrykkir eins og kók og kaffi
Vín, bjór og annað áfengi
Kolsýrðir drykkir
Feitur matur
Kryddaður matur
Tómatar
Hvítlaukur
Laukur
Piparmynta
Súkkulaði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“