fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Mikið úrval hjá Marko-Merkjum

Kynning

Alhliða skiltagerð og mikið úrval af auglýsingavörum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. janúar 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marko-Merki ehf. er alhliða skiltagerð sem er einnig með auglýsingavörur. Fyrirtækið var stofnað 9. október 1982 af hjónunum Soffíu Hjördísi Guðjónsdóttur og Pétri H. Hansen og hefur verið í eigu þeirra hjóna frá upphafi. Fyrirtækið kappkostar að bjóða mikið úrval af auglýsingavörum, verðlaunagripum og alls konar úti- og inniskiltum ásamt krossaskiltum á leiði og merkingum. Auk þess merkir Marko-Merki hús að utan og sker í ál, stál og fleira. Á heimasíðu fyrirtækisins www.marko.is má skoða það mikla úrval sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða.

Leggja upp úr miklu úrvali og góðri þjónustu

Hjá Marko er gott úrval af verðlaunagripum. Mótshaldrar íþrótta eða skemmtiviðburða koma því ekki að tómum kofanum hjá Marko.
Verðlaunagripir Hjá Marko er gott úrval af verðlaunagripum. Mótshaldrar íþrótta eða skemmtiviðburða koma því ekki að tómum kofanum hjá Marko.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

„Við leggjum upp úr miklu úrvali og góðri þjónustu, lágu verði, og höfum gæðin í fyrirrúmi,“ segir Pétur. „Við bíðum ekki með það til morguns sem við getum gert í dag. Úrvalið hjá okkur er heldur ekki af skornum skammti. Við prentum til dæmis á íþróttaföt, vinnuföt og annan fatnað. Einnig búum við til innifána (borðfána) og útifána ásamt alls konar gjafavöru, pinmerkjum, blöðrum og smádóti,“ segir hann. „Í hartnær tuttugu ár höfum við boðið upp á sandblástursfilmur í glugga, sem hafa notið mikilla vinsælda. Einnig sérmerkjum við persónulegar afmælis- og jólagjafir. Einnig erum við með mikið af verðlaunagripum í versluninni okkar,“ bætir hann við.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Ný þjónusta

„Við erum að byrja að bjóða upp á skiltakerfi í stigaganga og fyrirtæki, en þetta er viðbót sem fyrirtækið hefur ekki verið með áður,“ segir Pétur. Marko-Merki er staðsett að Flatahrauni 31 í Hafnarfirði, rétt við Kaplakrikavöllinn. Opið er alla virka daga frá kl. 10.00 til 17.00.

Marko-Merki ehf I Flatahrauni 31, 220 Hafnarfirði I 565 1999 I www.marko.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“