Laugardag 30. janúar milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford hjá Brimborg að Bíldshöfða 6.
Ford frumsýnir tvo 7 manna fjölskyldubíla laugardaginn, 30. janúar milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford hjá Brimborg að Bíldshöfða 6.
Ford S-MAX og Ford Galaxy eru vandaðir og praktískir 7 manna fjölskyldubílar. Glæsilegur staðalbúnaður, mikill öryggisbúnaður og framúrskarandi aksturseiginleikar gera þá að draumabílum fjölskyldunnar.
Meðal staðalbúnaðar er SYNC samskiptakerfi með Bluetooth og neyðarhringingu í 112, 8” snertiskjár í miðjustokk, íslenskt leiðsögukerfi, tvískipt tölvustýrð miðstöð með loftkælingu og 17” álfelgur. Veglínuskynjari með umferðaskiltalesara og árekstrarvari með neyðarbremsu eru einnig hluti af staðalbúnaði bílanna. Báðir bílarnir eru fáanlegir fjórhjóladrifnir.
Við hvetjum áhugasama til að koma í reynsluakstur á laugardaginn og upplifa frábæra aksturseiginleika Ford.
Allt um Ford S-MAX hér (einnig fáanlegur 5 manna)
Allt um Ford Galaxy hér