fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
FókusKynning

Vönduð þjónusta og gæði hjá Dimmalimm

Kynning

Dermatude Meta Therapy meðferðin mjög vinsæl

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. janúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snyrtistofan Dimmalimm leggur mikla áherslu á vandaða þjónustu og nota starfsmenn aðeins hágæða vörur í allar meðferðir sem stofan býður upp á. Svana Björk Hjartardóttir, meistari í snyrtifræði, dáleiðslutæknir og eigandi stofunnar, stofnaði fyrirtækið, sem er til húsa í Hraunbæ 102a, fyrir aftan Árbæjarblóm, 2006. Stofan fagnar því 10 ára starfsafmæli á þessu ári.

Notalegt umhverfi

„Okkar markmið er að viðskiptavinum okkar líði sem best í notalegu og slakandi umhverfi þegar þeir koma til okkar og geta hvílt sig frá daglegu amstri,“ segir Svana. „Við leggjum áherslu á fagmennsku, gæði og ævintýralega vellíðan,“ bætir hún við.

Dermatude Meta Therapy meðferðin mjög vinsæl

Svana segir eina vinsælustu meðferðina hjá þeim vera Dermatude Meta Therapy meðferðina sem er ný byltingarkennd, róttæk meðferð gegn öldrun húðarinnar. „Þessi meðferð er 100% náttúruleg og sársaukalaus og það besta er að þú sérð árangur strax,“ segir Svana. „Í meðferðinni eru gerðar örsmáar ástungur á húðina og notuð eru virk efni á húðina um leið. Náttúrulegar varnir líkamans bregðast strax við og byrja viðgerð á húðinni,“ bætir hún við. Svana segir meðferðina vera mjög áhrifaríka. „Meðferðin endurnýjar húðina og hún verður þéttari, sléttari og stinnari. Auk þess verður húðliturinn jafnari og bjartari. Húðin verður rakameiri og vinnur meðferðin einnig á línum og hrukkum,“ segir Svana. „Það sem er líka svo gott við þessa meðferð er að húðin jafnar sig nánast samstundis,“ segir hún í framhaldinu. Þess má geta að þetta er ein vinsælasta „anti-aging“ meðferðin hjá stjörnunum í Hollywood.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Bjóða upp á förðun

„Rebekka Einarsdóttir, snyrtifræðingur og Make up Artist, er mjög vinsæl hjá viðskiptavinum okkar fyrir ýmis tilefni eins og til dæmis árshátíðir, brúðkaup og fleira,“ segir Svana. „Hún er einstaklega fær og koma viðskiptavinir okkar alltaf aftur eftir að hafa komið til hennar,“ segir hún. Snyrtistofan býður upp á fjölbreytta þjónustu, eins og til dæmis litun og plokkun, augnhárapermanent, vaxmeðferð, Epilast, sem er varanlega háreyðing, sogæðameðferð, hand- og fótsnyrtingu sem og andlitsmeðferðir, allt frá hefðbundinni andlitsmeðferð upp í róttækari og óhefðbundnari meðferðir eins og Meta Therapy og dáleiðslu-andlitsmeðferð. Þar er leitast eftir virkilega góðri djúpslökun og vellíðan. Einnig er boðið upp á tíma í dáleiðslu en Svana er einnig dáleiðslutæknir. „Allir ættu því að finna eitthvað sitt hæfi,“ segir Svana.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Hlýjar móttökur

„Við tökum ávallt vel á móti viðskiptavinum okkar og leggjum mikið upp úr að fólki sem kemur til okkar líði vel,“ segir Svana. „Hægt er að skoða umsagnir um okkur á Facebook-síðunni okkar,“ segir hún og hvetur fólk til að kíkja á síðuna og skoða. Jafnframt er stofan með heimasíðu www.dimmalimm.is, þar sem hægt er að sjá allar meðferðir og vörur sem snyrtistofan býður upp á. Snyrtistofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00 og á laugardögum eftir samkomulagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“