Nú geta háskólastúdentar keypt námsbækurnar á rafrænu formi á Heimkaup.is, stærstu vefverslun á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki býður erlendar rafbækur fyrir nemendur á háskólastigi til sölu.Heimkaup.is leggur mikið upp úr því að hafa gott úrval og að kaupin verði einföld og þægileg fyrir nemendur. Það munar um minna fyrir háskólastúdenta því rafbækur eru ódýrari en prentaðar bækur og hægt er að vinna með námsefnið á nýjan og byltingarkenndan hátt.
Um 250 titlar af leslistum háskólanna verða í boði strax núna í janúar og enn fleiri munu bætast við á næstu vikum og mánuðum.
Nemendur sem kaupa rafbækur á Heimkaup.is fá aðgang að svæði (bókhillu) þar sem þeir geta nálgast sínar bækur hvar og hvenær sem er, í gegnum vefmót eða í appi. Með appinu er m.a. mjög þægilegt að lesa í hverskonar snjallsímum.
Nemandinn fer einfaldlega inn á Heimkaup.is, finnur bókina, setur hana í körfu og þegar hann er búinn að borga fær hann tölvupóst með leiðbeiningum og aðgang að bókahillunni sinni. Hægt er að greiða með debetkorti, millifærslu, Netgíró eða kreditkorti. Eins er hægt að skipta greiðslum ef keypt er fyrir 17.000 kr. eða meira.
Nemendur geta nálgast bækurnar sínar á augabragði hvar og hvenær sem er í tölvu eða snjalltæki. Í rafbókum er einkar auðvelt að leita að ákveðnu efni, eftir t.d. orðum eða kaflaheitum. Þá er hægt að merkja mikilvæg textabrot og glósa beint í bókina og jafnvel sjá glósur samnemenda eða kennara ef þeir bjóða upp á það. Þannig eru bækurnar gagnvirkar og þetta getur auðveldað nemendum að ná betri skilningi, fá önnur sjónarhorn og halda utan um aðalatriði.
Þá er hægt að prenta út síður (innan þeirra marka sem útgefandinn setur að sjálfsögðu), fá aðgang að öðru stafrænu efni sem tengist námsefninu, og auðvelt er að afrita og líma texta fyrir verkefni og ritgerðir. Þá styðja bækurnar tækni sem hjálpa nemendum með sjón- eða heyrnarskerðingu.
Heimkaup.is er stærsta vefverslun á Íslandi, með yfir 22.000 vörur til sölu. Sérstaða Heimkaup.is er að senda vörur heim að dyrum, samdægurs á höfuðborgarsvæðinu, pantanir út á landsbyggðina berast að jafnaði eftir einn eða tvo daga. Frí heimsending ef pantað er fyrir 4.000 kr. eða meira.