fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
FókusKynning

Þetta eru algengustu kynlífsmeiðslin

Elskendur, farið að öllu með gát!

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. janúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynlíf er íþrótt… segja sumir! Það er í það minnsta ljóst að telja má það til líkamlegrar áreynslu – svo fer það eftir losta og líkamlegu formi hversu mikill hamagangurinn verður.
Eins og á við um aðra líkamlega áreynslu verða meiðsli fórnarkostnaður fyrir suma. Hér eru þau algengustu:

1. Álag á vöðva. Krampar í vöðvum eru algengir í kynlífi. Ef þú ert lengi í undarlegri stellingu, eða í það minnsta stellingu sem er óvenjuleg fyrir þig, er eðlilegt að þú fáir sinadrátt. Í kynlífi notar þú 200 hitaeiningar á klukkustund, svo álagið á líkamann er talsvert. Kynlífi fylgir líka framleiðsla sæluhormóna sem gera það að verkum að þú áttar þig kannski ekki á álaginu fyrr en það er um seinan. Veldu stellingar sem eru þægilegar fyrir þig og vertu meðvituð/meðvitaður um álagið sem þú leggur á vöðvana.

2. Kúlur og marblettir. Höfuðið rekst í höfðagaflinn, þú dettur út úr rúminu eða skallar hornið á náttborðinu – hver hefur ekki lent í því?! Sem betur fer eru þessi meðsl ekki alvarleg og fyrir suma skemmtilegur hluti af leiknum!

3. Sleipa sturtan. Kynlíf í sturtunni er kannski heillandi, enda dásamlegt að láta blauta og æsta líkama fléttast saman. En flestir sturtubotnar eru ógeðslega sleipir! Hættan er meiri eftir því sem sturtuklefinn er minni. Ef þú getur ekki verið án sturtukynlífs má mæla með kaupum á baðmottu.

4. Brotið tippi. Þetta er líklega algengara en þú hélst! Hér skal tekið fram að það er ekki bein í tippinu, svo ekki er um venjulegt beinbrot að ræða, heldur er það bandvefsslíður, tunica albuginea, sem getur rifnað ef tippið lendir í miklu álagi. Ef þetta gerist, skaltu fyrir alla muni drífa þig á heilsugæslustöð eða slysó. Þú þarft ekki að skammast sín – heilbrigðisstarfsfólk hefur örugglega séð það verra! Á leiðinni er best að þú kælir tippið til að minnka innri blæðingu. Ekki stinga því beint ofan í glas sem er fullt af ís, vefðu um það þvottapoka og leggðu eitthvað frosið ofan á. Ómeðhöndlað „brot“ getur haft slæmar afleiðingar í för með sér. Þvagrásin getur orðið fyrir skaða, tippið getur skekkst til frambúðar, og stinningarvandamál geta gert vart við sig.

5. Röng notkun kynlífsleikfanga. Kynlífsleikföng eru frábær til að krydda tilveruna, en það þarf að nota þau rétt. Kynntu þér leiðbeiningarnar, notaðu sleipiefni og stingdu þeim í rétt göt (ef þau eru til þess að stinga í göt).

6. Tognun. Öflug fullnæging getur orðið til þess að vöðvar togna (til dæmis í hálsi). Þú gætir þurft að ganga með kraga í einhverjar vikur!

7. Árásir gæludýra. Hundar eru eigendum sínum oft ansi tryggir og geta gengið langt til að verja húsbónda sinn. Óhljóð og átök geta auðveldlega litið út eins og árás í augum hunds. Kettir eru líka hrifnir af öllu diglumdangli – karlmenn ættu að hafa það í huga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni