Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir það ljóst að þau viðbrögð að einblína fyrst og fremst á refsingar til að bregðast við afbrotum dugi skammt. Þar er Grímur einkum að vísa til afbrota, til að mynda þjófnaða, sem eiga rætur sínar í fíknivanda viðkomandi. Grímur segir það eitt að refsa þessum hópi sé skammtímalausn sem dugi ekki til lengdar til að draga úr afbrotum. Það sé í raun eins og hlýja sér í frosti með því að pissa í skó sinn en það sé mun líklegra til árangurs að klæða sig í ullarsokka, þ.e. að hlúa frekar að velferðar- og heilbrigðisþjónustu.
Þetta fjallar Grímur um í aðsendri grein á Vísi. Hann skrifar:
„Þegar síbrotamaður er handtekinn eða stór fíkniefnasending gerð upptæk er reynt að telja okkur í trú um að samfélagið hafi unnið sigur. Slíkar aðgerðir skipta vissulega máli og lögregla þarf að hafa burði til að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi. En ef markmiðið er að draga varanlega úr afbrotum og fíkn gera refsiaðgerðir lítið sem ekkert gagn.“
Áfengi og geðlyf
Grímur bendir á að ýmislegt bendi til að líðan barna og ungmenna á Íslandi fari versnandi. Tölur frá Barnaverndarstofu sýni fram á aukna áhættuhegðun. Áfengisneysla meðal barna fari vaxandi sömuleiðis ofbeldi og tilkynningum til barnaverndar og lögreglu, vegna barna og ungmenna, hafi fjölgað verulega. Samt sé lítið rætt um þessa varhugaverðu þróun í íslensku samfélagi:
„Við höldum áfram að rífast um Sundabraut og Fjarðaheiðargöng.“
Hann minnir einnig á að greiningar á geðrænum vanda hjá börnum og ungmennum hafi aukist mikið og samhliða því vaxi notkun geðlyfja:
„Þegar fleiri börn eiga í erfiðleikum með líðan, samskipti og þátttöku í samfélaginu eykst einnig hættan á brottfalli úr skóla, félagslegri einangrun, fíknivanda og afbrotum síðar á lífsleiðinni.“
Skór og ullarsokkar
Grímur segir að það hljóti því að blasa við að það sé engin lausn til framtíðar að loka síbrotamenn inni og glæpavæða fíkniefnanotkun. Það dragi kannski úr afbrotum tímabundið en leysi ekki vandann sem varð til þess að umræddir einstaklingar leiddust út í afbrot:
„Samfélag sem leggur megináherslu á efnisleg gæði en vanrækir tengsl, samkennd og þátttöku verður smám saman kaldara og firrtara. Jaðarsetning fátæks fólks leiðir ekkert gott af sér. Borgarafundur í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem rætt er um nágrannavörslu og harðari refsingar leysir heldur engan vanda.“
„Raunverulegar lausnir felast í því að breyta forgangsröðuninni algjörlega. Horfum til orsakaþátta og færum velferð barna úr 23. sæti það fyrsta. Hættum að pissa í skóinn til að forða okkur frá kuldanum í frostinu. Klæðum okkur heldur í ullarsokka og almennilega skó. Við þurfum að styðja börn, ungmenni, verðandi foreldra og viðkvæma hópa áður en spírall geðræns vanda sem aftur leiðir til fíknar eða afbrota tekur við.“
Grímur segir að í slíkri nálgun felist fjárfesting í snemmtækum stuðningi, öflugri geðheilbrigðisþjónustu, skólastarfi, tómstundum og sterkum samfélögum sem skili sér margfalt til baka – bæði í bættum lífsgæðum og færri afbrotum.
Grein Gríms í heild sinni er hægt að nálgast hér.