Starfsfólk á vegum Mosfellsbæjar vinnur nú að því að fanga þá minka sem sluppu út fyrir öryggisgirðingu á Dalsbúi í Mosfellsdal eftir að miklum fjölda minka á búinu var hleypt út. Þeir minkar sem sluppu út fyrir girðinguna verða allir aflífaðir en Matvælastofnun segir í nýrri tilkynningu að það verði gert með mannúðlegum hætti.
Í tilkynningunni segir að sérþjálfaðir minkahundar séu notaðir til að finna minkana og reynt sé eins og kostur er að aflífa dýrin með mannúðlegum hætti. Samkvæmt lögum um velferð dýra skuli ávallt staðið að veiðum þannig að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. Við veiðar sé óheimilt að beita aðferðum sem valdi dýri óþarfa limlestingum eða kvölum. Samkvæmt lögunum geti brot varðað sektum eða refsingum.
Segir einnig að veiðimenn eða aðrir með sérþjálfaða minkaveiðihunda sem óski eftir að bjóða fram aðstoð sína við föngun minkana séu beðnir um að mæta ekki á svæðið en geti haft samband við Mosfellsbæ, með því að senda tölvupóst, mos@mos.is, sem sjái um skipulag við aðgerðir. Fólk sé beðið um að hafa ekki lausa hunda á svæðinu