Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um að niðurrif á mannvirki sem eftir stendur á lóðinni að Fannborg 2 í miðbæ Kópavogs verði stöðvað á meðan kæra vegna þessara framkvæmda er til meðferðar hjá nefndinni. Niðurrif á byggingu sem þar stóð í áraraðir og hýsti m.a. kvikmyndahús og skrifstofur bæjarins hefur verið afar umdeilt en einnig voru byggingar við Fannborg 4, og 6 rifnar. Niðurrifið, sem hófst í upphafi árs var stöðvað um tíma, en hófst síðan aftur og er að mestu lokið. Íbúar í fjölbýlishúsum í götunni, sem margir eru eldri borgarar og margir hverjir hreyfihamlaðir, hafa kvartað mjög undan framkvæmdunum og þá einna helst að þær hafi haft í för með sér að svipta íbúa aðgangi að bílastæðum nærri heimilum þeirra. Í þessari nýju kæru er fullyrt að þetta hafi ekkert breyst ennþá. Þeir álasa einnig Kópavogsbæ fyrir algjöran skort á samráði vegna framkvæmdanna.
Íbúar í næsta nágrenni við framkvæmdasvæðið hafa einnig lent í því að járnplötur hafa fokið frá svæðinu og valdið skemmdum á heimilum þeirra, m.a. brotnaði rúða í einni íbúð.
Niðurrif á Fannborg 2, sem hýsti áður Kópavogsbíó og skrifstofur bæjarins, var stöðvað í janúar síðastliðnum þar sem ekki lágu fyrir tilskilin leyfi fyrir því frá byggingarfulltrúa bæjarins en eftir að hann gaf út leyfi hófst niðurrifið að nýju. Niðurrif á byggingunum við Fannborg 2, 4 og 6 mun eftir því sem DV kemst næst vera að mestu lokið. Í staðinn eiga að koma ný fjölbýlishús. Hins vegar stendur eftir bílastæðaplata á lóðinni að Fannborg 2 og niðurrif á henni hefur nú verið heimilað af byggingarfulltrúa bæjarins og sú ákvörðun hefur verið kærð til nefndarinnar.
Ekkert hafi breyst
Það eru fjórir íbúar í fjölbýlishúsunum að Fannborg 8 og 9 sem hafa kært þetta nýja framkvæmdaleyfi vegna þessa lokahnykks á hinu umdeilda niðurrifi. Um leið kröfðust þeir þess að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar.
Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kröfu íbúanna um tímabundna stöðvun er saga málsins rakin. Nýtt deiliskipulag sem heimilaði niðurrifið tók gildi undir lok árs 2021. Það var kært til nefndarinnar sem hafnaði því að ógilda skipulagið.
Í lok janúar 2026 var síðan samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Kópavogs að heimila niðurrif á byggingunni að Fannborg 2, sem var 3,199 fermetrar að stærð. Framkvæmdaleyfi var síðan gefið út í febrúar.
Byggingarfulltrúinn samþykkti síðan fyrr í þessum mánuði og gaf í kjölfarið út framkvæmdaleyfi fyrir því að rífa bílastæðaplötuna sem eftir stóð en bærinn segir þetta síðasta áfangann í niðurrifinu.
Í kærunni er bent á að í Fannborg 8 sé að finna íbúðir fyrir aldraða og að fjölmargir íbúar að Fannborg 1–9 séu með skerta hreyfigetu vegna fötlunar eða aldurs. Samkvæmt byggingarreglugerð skuli bílastæði hreyfihamlaðra vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær en 25 metra í greiðfærri aðkomuleið. Á framkvæmdatíma þessa áfanga niðurrifsins verði fjarlægð heimila frá bílastæðum langt yfir þeim mörkum.
Segir enn fremur að í greinargerð með gildandi deiliskipulagi komi fram að „gera verði áætlun um framkvæmdatíma og vinna áfangaskiptingu í samráði við hagsmunaaðila“. Allir íbúar og íbúðareigendur á svæðinu séu hagsmunaaðilar. Í samráði felist að hlustað sé á skoðanir og að ákvarðanir séu byggðar á framkomnum sjónarmiðum. Samráð sé hvorki fundur þar sem einn aðilinn tilgreini áform sín né heldur miðlun á upplýsingum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Ákvörðun bæjarstjórnar um að heimila niðurrifið byggi á gögnum sem hafi verið unnin af framkvæmdaraðila og ekki hafi verið haft samráð við íbúa við gerð þeirra. Þá hafi kærendur ekki heldur fengið í hendur fundargerðir eða minnisblöð af samráðsfundum.
Áætlun
Í andsvörum Kópavogsbæjar vegna kærunnar kemur meðal annars fram að tekið sé á staðhæfingum kærenda um skert aðgengi íbúa í aðkomuáætlun og beri framkvæmdaraðila samkvæmt uppbyggingarsamkomulagi að tryggja fullnægjandi aðgengi að nærliggjandi svæðum á meðan á framkvæmdum standi.
Bærinn segir að aðkomuáætlunin feli í sér útfærðar lausnir til að tryggja aðgengi á framkvæmdatíma og verði hún endurskoðuð reglulega með það að markmiði að tryggja besta mögulega aðgengi í hverjum framkvæmdafasa. Leggi framkvæmdaraðili til breytingar á aðkomuáætlun beri að leggja þær fyrir byggingarfulltrúa til samþykktar og verði allar breytingar sérstaklega kynntar fyrir íbúum og hagaðilum í nágrenninu. Lögð sé áhersla á að um tímabundnar ráðstafanir sé að ræða á meðan framkvæmdir standi yfir.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kröfu íbúanna um stöðvun niðurrifsins á bílastæðaplötunni, á meðan kæra þeirra er til meðferðar, segir að ekki verði talin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir á meðan málið sé til meðferðar. Segist nefndin horfa til þess að niðurrifsframkvæmdir á lóð númer 2 við Fannborg séu langt á veg komnar og þótt fallist yrði á kröfu um stöðvun framkvæmda gætu íbúarnir samt ekki nýtt sér þau bílastæði sem kæra þeirra snúist um. Kröfu þeirra um stöðvun niðurrifsins sé því hafnað.
Nefndin tekur hins vegar fram að framkvæmdaraðili beri áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að halda áfram framkvæmdum áður en niðurstaða liggi fyrir.