Myndband sem sýnir misheppnaða tilraun kínverskra ferðamanna að róa kayak í Eyjafirði hefur vakið talsverða athygli, enda sprenghlægilegt. Myndbandið var birt á Youtube í fyrra en nú hafa um 57 þúsund manns séð það.
Því var deilt á vefsíðunni Reddit í gær og menn.is. Á Reddit hafa sprottið upp talsverðar umræður um ferðamenn á Íslandi sem má sjá hér.