Feðgðar í Fayette-sýslu í Alabama í Bandaríkjunum létust af slysförum þegar bifreiðar þeirra skullu saman um helgina.
Faðirinn, Jeff Brasher, var á leið til vinnu, en hann starfaði sem bílstjóri fyrir bakarí á svæðinu. Sonurinn, Austin Brasher, hafði hins vegar verið úti að skemmta sér og var á leið til síns heima þegar bifreiðarinar skullu saman. Jeff var fimmtugur en Austin var tuttugu og tveggja ára.
Slysið varð klukkan fjögur um nótt og talsvert frá heimili þeirra í Bankston. Svo virðist vera sem annar hafi misst stjórn á bifreið sinni og ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að bílarnir skullu saman.
Jeff var úrskurðaður látinn á staðnum en Austin var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús þar sem hann lést, fimm klukkustundum síðar. Hvorugur var í belti, að sögn lögreglu. Ekki er útilokað að áfengisneysla hafi átt þátt í slysinu, þó lögregla vilji ekki fullyrða það.
Jeff hafði verið kvæntur eiginkonu sinni og móður Austin, Pam, í aldarfjórðung. Þau eignuðust tvö börn; Austin og dótturina Jennifer.