Hvern ættir þú að kjósa?
Aldrei hafa fleiri boðið sig fram til forseta og nú, en fimmtán manns hafa boðið sig fram í embættið.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur boðað til blaðamannafundar í dag. Forsetaritari, Örnólfur Thorsson vildi ekkert gefa upp um efni fundarins þegar eftir því var leitað.
Sjá nánar: Ólafur Ragnar boðar til blaðamannafundar
Twitter-notandinn Birgir Guðmundarson setti færslu á síðuna sína fyrr í dag sem gæti hjálpað þér við að velja úr þeim stóra hópi frambjóðenda sem gefið hafa kost á sér. Allt er þetta til gamans gert en hægt er að taka þátt í forsetalottóinu hér að neðan.
Taktu þátt í forsetalottóinu og sjáðu hvern þú átt að kjósa. Þinn frambjóðandi birtist þegar þú smellir á pásu. pic.twitter.com/hF3AGDEHgb
— Birkir Guðmundarson (@BirkirGudmundar) April 18, 2016