Leiðari DV birtist í helgarblaði dagsins í dag 08.01.2021
Fréttirnar af stjórnleysi og sturlun í Bandaríkjunum hafa enn á ný minnt á hversu stuttur vegarkafli liggur frá jafnvægi yfir í stjórnleysi. Ótrúlegt ástand en samt svo fyrirsjáanlegt þegar horft er til gegndarlausrar persónudýrkunar á vanhæfum forseta þar í landi.
Síðastliðið ár hefur einkennst af mikilli þörf fyrir stjórnun og reglur sem skerða einstaklingsfrelsið. Það hefur sýnt sig að það þarf að hafa vit fyrir fólki. Bretland er annað land sem stjórnleysi hefur leikið grátt síðustu mánuði en þó á annan hátt. Þar voru sett boð og bönn en eftir þeim er ekki farið af mikilli dyggð. Íslenskur viðmælandi DV í Bretlandi segist upplifa að Bretar hafi misst trúna á stjórnvöldum sem gripu seint og illa inn í faraldurinn. Í Bretlandi hafa yfir 77.000 manns látist úr COVID19 – þar af yfir 1.000 manns í gær, fimmtudag. Landið hefur farið verst allra í Evrópu út úr faraldrinum þrátt fyrir að hafa í upphafi alla burði til að takast á við yfirvofandi veirustríð.
Bandaríkin hafa að sama skapi farið ákaflega illa út úr faraldrinum og þar eru flest dauðsföll í heiminum. Í miðju dauðsfallanna og umhyggjuleysisins snýst brosandi maður í hringi. Hann heldur á síma sem hann sendir skipanir úr eins og í tölvuleik og virkjar alls konar fólk – með alls konar bresti.
Bang – allt sem þú lest er lygi – bang – gerðu eins og ég segi þér – bang – annars rek ég þig – bang – COVID19 er bull – bang – ég hætti aldrei!
Það er fyrir löngu orðið ljóst að maðurinn á toppi sirkustjaldsins gengur ekki heill til skógar. Hvort sem það er illska, fáfræði eða andlegir brestir – eða allt þetta í einum hrærigraut sem knýr hann áfram í tortímingardansi sínum, þá mun hann ekki hætta af sjálfsdáðum.
Hann getur það ekki. Hann þarf aðstoð – það þarf að hafa vit fyrir honum. Tortímingardansinn mun á endanum ná honum sjálfum en spurning er hvað hann tekur með sér ofan í svörtu holuna. Þessi saga er ekki ný. Við höfum séð hana áður og oft með skelfilegum afleiðingum. Einræðislegir tilburðir, vöntun á samkennd og siðferði, umhyggjuleysi, valdafíkn og ofsóknaræði. Grafa skal undan fjölmiðlum og máttarstólpum sem ekki þóknast sirkusstjóranum.
Burt – bang!
Það er í raun ótrúlegt að maðurinn hafi ekki verið stoppaður fyrir löngu. Nái einstaklingur að koma sér fyrir í mjög valdamiklu starfi virðist það duga til þess að hann haldist þar óásættanlega lengi þvert á augljós brot í starfi og aðgerðir sem sýna vanhæfni hans og grimmd.
Er hægt að gasljóstra heila þjóð og stjórnkerfi?
Það erfiðasta er að horfa upp á stjórnleysið og vita að það mun endurtaka sig. Ekki sömu leikmenn og leikborð en engu að síður er þetta gömul saga og ný. Það er hinn allra mesti harmleikur.