fbpx
Sunnudagur 12.janúar 2025
Leiðari

Ekki gleyma

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 21. mars 2020 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óneitanlega lítið jákvætt í fréttum á þessum stórfurðulegu tímum. Fólk gerir það sem það getur um heim allan til að halda í gleðina. Það syngur úti á svölum, fer út í göngutúra víðs fjarri siðmenningu, tekur myndsímtöl á aldraða ættingja og finnur upp á 101 leik til að stytta börnum sínum stundir. Fólk kemst ekki til útlanda. Veit raunar ekki hvenær það kemst næst af þessari eyju. Fólk birgir sig upp af nauðsynjavöru, þar sem það er hægt. Skipuleggur máltíðir fram í tímann. Sættir sig við að munaðarvörur er ekki hægt að fá. Einkabílnum er lagt á mörgum heimilum. Það fer lítið sem ekkert út að borða, verslunarmiðstöðvar eru nánast tómar og margir þurfa að vinna heima alla daga vikunnar eða part úr henni. Eins og grínið á internetinu segir: Vá, margir af þessum fundum hefðu bara getað verið tölvupóstar.

COVID-19 faraldurinn kemur í kjölfar mikillar vitundarvakningar í samfélaginu um hlýnun jarðar og hvaða aðferðum við getum beitt til að sporna gegn henni. Ekki sóa mat, keyra minna, ganga og hjóla meira, kaupa minna, borða minna kjöt. Það er í grunninn það sem einstaklingar geta gert til að vernda umhverfi sitt.

Nú hefur okkur verið þröngvað í þessar aðgerðir af agnarsmárri veiru með ofurstóran eyðileggingarmátt. Veiru sem við óttumst réttilega. Hún hefur hreiðrað um sig hér sem og annars staðar og við sjáum ekki enn fyrir endann á þessum hörmungum. Við erum neydd til að lifa í naumhyggju og virðist það ganga ágætlega. Hins vegar hefur það gríðarlega slæmar afleiðingar á þau fyrirtæki sem fóðra neysluhyggju okkar, sérstaklega þau sem minni eru. Mörg munu fara á hausinn. Það er alveg ljóst. Jafnvel þau fyrirtæki sem tikka í öll box er varðar samfélagslega ábyrgð og umhverfisvernd.

Þegar þetta er allt afstaðið er naumhyggjan það sem við þurfum til að lifa af. Í uppbyggingunni megum við ekki gleyma að það var fínt að lifa í naumhyggjunni, þótt við viljum stundum láta hrífa okkur í burtu á rósrauðu skýi neysluhyggjunnar. Fljúga til Bene og Tene, maka á sig sólarolíu, kaupa handónýta sandala á götumarkaði og splæsa á sig þriggja rétta kjötveislu. Fljúga bara eitthvert því það er kalt á Íslandi. Kaupa fjögur brauð þegar við þurftum bara tvö. Henda afgöngunum næsta daga því þeir „voru ekki girnilegir“.

Þessi tími sem við lifum er átakanlegur. Hann mun valda sorg í hjörtum margra á Íslandi og hefur gert það nú þegar. Þegar við stöndum upp aftur og lífið kemst í kunnuglegar skorður þá megum við aldrei gleyma þessum tíma. Við megum aldrei gleyma hvað það var í raun auðvelt að afsala sér þeim þægindum sem við erum orðin vön. Við megum ekki gleyma þeim gríðarlega kærleik sem hefur losnað úr læðingi í þessum fimbulkulda örvæntingar og ótta. Við megum ekki gleyma hvað við sem samfélag getum í raun áorkað miklu, þrátt fyrir smæð og landfræðilega einangrun. Í uppbyggingunni megum við síðan ekki gleyma þeim sem verst standa. Öllum þeim sem missa vinnuna, missa fyrirtækin sín, missa tilgang. Þótt þessi veira sé andskotans óþverri þá hefur hún að mörgu leyti kallað fram það besta í okkur öllum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Ung kona í blóma lífsins ætlaði að tilkynna kærastanum að hún væri ólétt – Hann átti sér þó leyndarmál og það sást aldrei til hennar aftur

Ung kona í blóma lífsins ætlaði að tilkynna kærastanum að hún væri ólétt – Hann átti sér þó leyndarmál og það sást aldrei til hennar aftur
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Miðjumaður Arsenal líklega búinn að finna nýtt félag

Miðjumaður Arsenal líklega búinn að finna nýtt félag
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Zlatan tjáir sig um Rashford: ,,Ekki auðvelt að eiga við Manchester United“

Zlatan tjáir sig um Rashford: ,,Ekki auðvelt að eiga við Manchester United“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Slot um leikmanninn sem er sagður vera á förum: ,,Ekki bara erfitt fyrir hann“

Slot um leikmanninn sem er sagður vera á förum: ,,Ekki bara erfitt fyrir hann“
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Mjólkurglas á dag gæti verndað þig gegn krabbameini

Mjólkurglas á dag gæti verndað þig gegn krabbameini
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Zirkzee búinn að taka ákvörðun

Zirkzee búinn að taka ákvörðun
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Stórhuga stjórnendur bandarísku járnbrautanna – Stytta ferðatímann á milli tveggja stórborga um 9 klukkustundir

Stórhuga stjórnendur bandarísku járnbrautanna – Stytta ferðatímann á milli tveggja stórborga um 9 klukkustundir
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Óvæntur sigur í Íslendingaslag í enska bikarnum – Hákon stóð í markinu

Óvæntur sigur í Íslendingaslag í enska bikarnum – Hákon stóð í markinu
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Áttu að sleppa því að borða pasta ef þú vilt léttast? Þetta segja vísindamenn

Áttu að sleppa því að borða pasta ef þú vilt léttast? Þetta segja vísindamenn