Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir eftirtektarverðar breytingar fram undan í veðrinu hér á landi um miðjan þennan mánuð.
„Hér við land er til skemmri tíma útlit fyrir heldur lækkandi frostmarkshæð, en fremur hægum vindi. Út vikuna snjóar annað veifið og lítillega á fjallvegum norðantil og sums staðar næturfrost eins og gengur. En á sunnudag/mánudag, þ.e. um miðjan mánuðinn er spáð eftirtektarverðum breytingum á lofthringrásinni við N-Atlantshaf,“ segir Einar í færslu sem hann birti á vef Bliku í morgun.
Einar segir að þetta eigi bæði við um spár Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar (ECMWF) og Bandarísku alríkisveðurstofunnar (GFS).
Hann segir að safnspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því í morgun vera áhugaverða.
„Meginspáin og allar 50 safnspárnar reikna með háþrýstisvæði yfir Bretlandseyjum,“ segir hann og bætir við að þetta hafi í för með sér sunnan stæðan vind í háloftunum hér við land. Á þessum árstíma fylgi þá að mestu milt og vorlegt veður en oftar en ekki væta í einhverjum mæli sunnantil.
„Safnspárnar gera síðan ráð fyrir því að hæðin færist í aukana og verði eiginlega fyrirstöðuhæð,“ segir Einar og bætir við að dagan 19. til 21. apríl kerfið flokki safnspárnar í þrjá nokkuð jafna þriðjunga.
„Tveir þeir fyrri eru keimlíkur með hálofthæðina yfir Skotlandi, Norðursjó og S-Noregi. Hér á landi þá hiti markvert yfir meðallagi og S eða SV-þeyr. 1/3 safnspánna færa hæðina austar. Gangi það eftir eru meiri líkur á svalara loftið með uppruna úr suðvestri og hálfgerðu kalsaveðri sunnan- og vestanlands.
Einar nefnir svo á að aðalspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar miðvikudaginn 19. apríl reikni með mildu veðri en aðalspá hinnar bandarísku sé með svalari gerðina ofan á.
„Með því að skoða langtímaspár með þessum hætti lærist smám saman að meta óvissu og líkur. Engar safnspár gera ráð fyrir N-lægum vindi þar sem kalda loftið af ísasvæðunum ætti greiðan aðgang. Þýðir samt ekki að líkur á slíku séu núll, en safnspár ECMWF gefa klárlega til kynna að líkurnar á hreti þessa daga eru litlar. Á móti eru þær miklar á að framsókn vorsins verði nokkuð eindregin í næstu viku.“
Einar segir að um 30-35 prósenta líkur séu á éljum eða slydduéljum og heldur lægri hita suðvestan- og vestanlands. Hann segir að það ætti ekki beint að koma á óvart enda kalsasuðvestan- og vestanátt ansi algeng um miðjan apríl og fram yfir sumarbyrjun.