fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Svarthöfði: Allir eiga rétt á að vita allt um alla

Svarthöfði
Laugardaginn 20. október 2018 18:00

Gamla útvarpshúsið Þar sem bæjarbúar voru upplýstir um bólfarir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljótt fannst Svarthöfða að heyra að einhver stuttbuxnastrumpur úr SÚS vilji loka netsíðu þar sem hægt er að fletta upp upplýsingum um tekjur allra landsmanna. Hefur hann krafist þess að sýslumaður setji lögbann á herlegheitin og ef það gengur ekki þá ætlar hann að fara með málið fyrir dómstóla, væntanlega upp öll dómstigin og til Strassborgar ef þurfa þykir.

Þetta þykir Svarthöfða argasta móðursýki í drengnum og merki þess að annaðhvort sé hann með svo há laun að hann vilji ekki að aðrir öfundist út í hann eða þá að kaupið sé svo lágt að hann dauðskammist sín. Allt tal um „friðhelgi einkalífsins“ er hjóm í eyrum Svarthöfða.

Svarthöfði bjó eitt sinn í kaupstað úti á landi þar sem þetta hugtak komst í deigluna eftir uppákomu í framhaldsskólanum. Á hverjum sunnudegi hittust tveir nemendur á kaffihúsi við höfnina og söfnuðu slúðri helgarinnar. Aðalumfjöllunarefnið var hverjir hefðu verið að sænga hjá hverjum. Þetta rituðu þeir niður í bók og voru einkunnarorðin „Allir eiga rétt á að vita allt um alla.“

Nú, þeir létu ekki þar við sitja heldur fóru með þessa sjóðheitu bók upp í útvarpsstöðina sem skólinn rak og þar lásu þeir upp allt slúðrið í beinni. Frábært framtak og þarft. Bæjarbúar allir höfðu nú fullkomna heildarsýn yfir ástalíf unglinganna.

Þegar aðstoðarskólastjórinn heyrði þetta kom hann hlaupandi inn í útvarpshúsið og slökkti á útsendingunni. Þetta fannst Svarthöfða miður enda voru upplýsingarnar þarna bæði fróðlegar og gagnlegar. Þarna var verið að skerða rétt Svarthöfða til að vita hvaða bólfarir hefðu farið fram þessa helgina. Svarthöfði gekk um í algeru myrkri. Ófær um að taka ákvarðanir sem upplýstur þjóðfélagsþegn.

Þessi reynsla kenndi Svarthöfða að ómengað gegnsæi er lykilatriði til að samfélög funkeri. Þess vegna má ekki loka þessari blessuðu tekjusíðu. Þvert á móti þarf að opna á fleiri svona síður. Til dæmis allar sjúkraskrár til að Svarthöfði geti sigtað út hverjir séu veikir og hverjir heilbrigðir. Gagnagrunna í skólum svo að Svarthöfði geti flett upp einkunnum. Svo auðvitað LÖKE gagnagrunn lögreglunnar til að Svarthöfði geti séð hverjir voru teknir keyrandi undir áhrifum um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar

Arsenal og United munu berjast um sama manninn í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Yfirgefur Manchester United og skrifar undir á Spáni

Yfirgefur Manchester United og skrifar undir á Spáni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“