fbpx
Sunnudagur 28.júlí 2024
Fréttir

Pabbakroppur í þröngri sundskýlu sló í gegn á ÓL

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 28. júlí 2024 17:30

Hin ónefnda stjarna var ekki í slæmu formi en ekki Ólympíuformi heldur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var óvæntur aðili sem sló í gegn á sundkeppni Ólympíuleikanna í París í morgun. Stæltar sundstjörnurnar bliknuðu í samanburði við ónefndan starfsmann mótsins sem skyndilega sprangaði fram í keppnishöllina í þröngri en litríkri Speedo-sundskýlu.

Ástæðan var sú að sundkonan Emma Weber hafði misst sundhettu sína í lauginni þegar hún synti 100 metra bringusund sitt. Sundhettan truflaði næsta ráshóps sundsins og því þurfti að gera hlé á keppninni. Hinn ónefndi Speedo-maður birtist því skyndilega, tölti í rólegheitunum að sundlaugarbakkanum.

Kappinn, sem var frekar venjulegur vexti miðað við þá grísku guði sem sundkapparnir eru, vakti gríðarlega lukku og öskruðu áhorfendur af fögnuðu þegar kappinn stakk sér til sunds og náði í sundhettuna áðurnefndu. Svo tölti hin ónefnda stjarna rólega tilbaka á sinn stað, eflaust tilbúinn í næsta verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Lýst eftir My Ky Le

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Strokufanginn Gabríel kallar eftir meiri sanngirni fangavarða – „Ég er að reyna að komast út í lífið“

Strokufanginn Gabríel kallar eftir meiri sanngirni fangavarða – „Ég er að reyna að komast út í lífið“
Fréttir
Í gær

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“