Óhugnalegt mál skekur nú Bretlandseyjar en líkamsleifar tveggja karlmanna fundust í ferðatöskum við eina frægustu brú landsins. Talið er að mennirnir tveir hafi verið myrtir og sundurlimaðir í Sheperds Bush-hverfinu í London en líkamsleifar þeirra síðan fluttar í áðurnefndum ferðatöskum til Bristol þar sem þær voru skyldar eftir við Clifton Suspension-brúnna þekktu.
Lögregla telur sig hafa mynd af einum grunuðum í málinu sem sjá má hér fyrir neðan, en þessi einstaklingur á að hafa komið ferðatöskunum fyrir samt vitorðsmanni og stendur umfangsmikil leit yfir. Greint var frá því nú fyrir stundu að einn maður, 36 ára gamall, hafi verið handtekinn í tengslum við málið en að það sé ekki maðurinn á myndinni.
Talið er að mennirnir hafi ætlað sér að henda ferðatöskunum í ánna sem rennur undir brúnna en vökulir vegfarendur hafi styggt hann og því hafi töskurnar orðið eftir á brúnni. Mennirnir tveir eru sagðir hafa verið í brasi með að lyfta töskunum sem bendir mögulega til þess að þær hafi verið sérstaklegar þyngdar svo að þær myndu sökkva til botns. Hjálpsamur vegfarandi hafi þá stokkið til að aðstoða þá og spurt þá í gríni, út af þyngdinni, hvort að lík væru í töskunum.
Breskir miðlar greina frá þvi að annar vegfarandi á hjóli hafi veitt manninum eftirför en hann hafi komist undan. Lögreglan telur að vitorðsmenn mannsins hafi náð í hann á bifreið og að öllum líkindum skutlað honum aftur til London.
Ekki hefur enn verið borið kennsl á líkin en rannsókn stendur yfir.
Á blaðamannafundi lögreglu ytra kom fram að líkin í ferðatöskunum eru talin tengjast vettvangi glæps í áðurnefndu Sheperds Bush-hverfi sem lögregla hefur til rannsóknar.