Vopnið er eins og drónar að því leyti að það er hægt að fjarstýra því eða gefa því fyrirmæli um að fara á ákveðinn stað.
Tass fréttastofan segir að nú sé fyrsta eintakið af vopninu, sem heitir Poseidon, tilbúið. Þetta er tundurskeyti sem er 24 metra langt. Bæði Bandaríkin og Rússland segja að hér sé um algjörlega nýja tegund vopns að ræða.
Það er hægt að setja kjarnaodda á Poseidon og geta þeir myndað geislavirkar flóðbylgjur sem geta gert strandborgir og bæi óbyggilega.
Reuters segir að samkvæmt frétt Tass þá séu fyrstu tvö Poseidon-tundurskeytin tilbúin og verði fljótlega sett í kafbát.
Tundurskeytið er með kjarnakljúf sem gerir að verkum að það er með eldsneyti til margra ára.
Pútín kynnti vopnið í fyrsta sinn 2018 og sagði þá að það hefði óendanlegt drægi og geti verið á miklu meira dýpi en kafbátar og venjuleg tundurskeyti. „Það er næstum hljóðlaust, mjög lipurt í hreyfingum og óvinir geta nánast ekki eyðilagt þau. Það eru engin vopn til í heiminum sem geta sigrast á þessu,“ sagði hann þá.