Fréttir

Trump neitar að ætla að reka Hegseth – Heimildarmenn segja að annað sé uppi á teningnum

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður íhuga að láta Pete Hegseth varnarmálaráðherra taka pokann sinn í kjölfar afhroðs Repúblikana í þingkosningunum á þriðjudag.

Daily Mail hefur eftir heimildarmönnum sínum að Trump hafi rætt framtíð ráðherrans við nokkra nána ráðgjafa sína.

Óánægja forsetans er sögð tengjast einkum upplýsingagjöf Hegseth um stríðið gegn Íran. Samkvæmt heimildarmönnum Daily Mail er Trump ósáttur við að hafa ítrekað fengið mikilvægar upplýsingar um hernaðaraðgerðir í Íran of seint. Í sumum tilvikum hafi hann ekki verið upplýstur um yfirvofandi ógnir fyrr en þær voru orðnar að veruleika.

Samkvæmt heimildarmanni innan Hvíta hússins hefur Trump meðal annars krafist svara við því hvers vegna loftvarnarkerfi og eldflaugar Írana hafi ekki verið eyðilagðar, þrátt fyrir að Hegseth hefði áður fullyrt að bandaríski herinn hefði náð því markmiði.

Heimildarmenn Daily Mail telja að Hegseth gæti verið látinn fjúka áður en nýtt þing kemur saman í janúar. Demókratar tryggðu sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í kosningunum og því gæti reynst Trump erfiðara að fá nýjan varnarmálaráðherra staðfestan eftir áramót.

Á sama tíma eru miklar deilur innan Repúblikanaflokksins um hver beri ábyrgð á kosningaósigrinum. Ýmsir áhrifamenn innan flokksins eru sagðir vilja finna blóraböggul og hafa meðal annars nefnt Pete Hegseth, Marco Rubio utanríkisráðherra og Susie Wiles, yfirmann starfsliðs Hvíta hússins, í því sambandi.

Hvíta húsið hefur vísað fregnunum á bug og segir Trump bera fullt traust til Hegseth. Forsetinn hefur sjálfur neitað því að hann hyggist reka ráðherrann og sagt hann standa sig mjög vel. Þrátt fyrir það fullyrða heimildarmenn Daily Mail að framtíð Hegseth í embætti sé nú til alvarlegrar skoðunar.