Mikil óánægja var farin að krauma meðal nánustu ráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta í aðdraganda þingkosninganna á þriðjudag.
Þeir höfðu ítrekað varað forsetann við því að stríðið í Íran, óvinsælar ákvarðanir og mistök í kosningabaráttunni gætu reynst Repúblikanaflokknum dýrkeypt. Trump er hins vegar sagður hafa látið viðvaranirnar að mestu sem vind um eyru þjóta.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun New York Times, sem Daily Mail hefur einnig fjallað um. Þar er dregin upp mynd af vaxandi gremju innan herbúða forsetans, þar sem lykilmenn töldu hann vera að stefna flokknum í mikinn vanda.
„Óvinurinn erum við sjálf“
James Blair, sem hafði yfirumsjón með kosningastefnu Trump, var meðal þeirra sem höfðu þungar áhyggjur af stöðunni. Hann er sagður hafa viðurkennt að stærstu vandamál Repúblikanaflokksins kæmu innan frá.
„Ég hef séð óvininn og hann erum við sjálf,“ sagði Blair samkvæmt umfjölluninni.
Tony Fabrizio, helsti skoðanakannanaráðgjafi Trump, tók undir þetta og sagði vandann vera víða að finna.
Aðeins viku fyrir kosningarnar virðist Blair raunar hafa verið farinn að búa sig undir hið versta. Á fjarfundi með öðrum ráðgjöfum sagðist hann vera farinn að ganga frá sínum málum og hvatti hina til að gera slíkt hið sama.
Hann gerði jafnframt að gamni sínu að ráðgjafarnir gætu þurft að leita hælis í Ísrael til að komast undan hugsanlegum málaferlum af hálfu demókrata.
Viðvaranir um Íransstríðið
Stríð Bandaríkjanna við Íran var eitt helsta áhyggjuefni ráðgjafanna. Fabrizio hafði látið gera kannanir og rýnihóparannsóknir sem bentu til þess að stríðsreksturinn væri farinn að grafa undan stuðningi við forsetann.
Kjósendur sögðu meðal annars að Trump hefði svikið loforð sitt um að halda Bandaríkjunum frá nýjum styrjöldum. Margir skildu heldur ekki hvers vegna Bandaríkin væru yfirhöfuð í stríði við Íran.
Þegar JD Vance varaforseti samdi um vopnahlé í júní sýndu kannanir Fabrizio mikinn stuðning við þá ákvörðun. Þá töldu 67 prósent að vopnahléið gæti stuðlað að lægra eldsneytisverði.
Vopnahléið reyndist hins vegar skammvinnt og stríðið hélt áfram.
Samkvæmt umfjölluninni spurði Trump síðar einn ráðgjafa sinna athyglisverðrar spurningar:
„Hvað heldurðu að hefði gerst í þingkosningunum ef við hefðum aldrei farið inn í Íran?“
Upptekinn af danssalnum
Ráðgjafar Trump höfðu einnig áhyggjur af því að forsetinn virtist leggja meiri áherslu á persónuleg framkvæmda- og byggingarverkefni en þau málefni sem brunnu á kjósendum.
Þar á meðal var nýr danssalur við Hvíta húsið og hugmyndir um golfvöll í Washington.
Á sama tíma sýndu kannanir að kjósendur höfðu fyrst og fremst áhyggjur af verðbólgu, efnahagsmálum og stríðinu í Íran.
Þá urðu harðar deilur innan ríkisstjórnarinnar um stefnu í innflytjendamálum. Susie Wiles, yfirmaður starfsliðs Hvíta hússins, og Stephen Miller, einn helsti hugmyndafræðingur innflytjendastefnu Trump, tókust á um hvort draga ætti úr hörkunni eftir umdeildar skotárásir á vegum innflytjendaeftirlitsins ICE í Minnesota.
Dýrkeypt mistök í kosningabaráttunni
Fjármál kosningabaráttunnar voru annað stórt ágreiningsefni.
Trump er sagður hafa dregið mánuðum saman að heimila ráðstöfun hundruð milljóna dollara sem safnast höfðu í kosningasjóði tengda honum. Þegar loks fékkst heimild til að verja peningunum hafði auglýsingaverð hækkað verulega.
Í einu tilviki þurftu stuðningsmenn Trump að greiða 30 þúsund dollara fyrir sjónvarpsauglýsingu sem demókratar höfðu áður getað tryggt sér fyrir aðeins 2.700 dollara.
Þá voru ráðgjafar forsetans ósáttir við val hans á nokkrum frambjóðendum og töldu að ákveðnar ákvarðanir hans hefðu gert flokknum erfiðara fyrir.
Eftir kosningaósigurinn hófst svo leit að þeim sem bæru ábyrgðina. Trump hefur sjálfur bent á frambjóðendur flokksins en samkvæmt Daily Mail hefur hann jafnframt rætt við nána ráðgjafa um hvort Pete Hegseth varnarmálaráðherra eigi að halda embætti sínu.
Vance varaforseti hefur hins vegar bent sérstaklega á Íransstríðið sem ástæðu ósigursins.
„Ástæðan fyrir því að við töpuðum er stríðið. Forsetinn sagði það sjálfur í gærkvöldi,“ sagði Vance.
Þrátt fyrir óánægjuna innan eigin raða hefur Trump opinberlega gert lítið úr persónulegri ábyrgð sinni á úrslitunum og bent á að hann hafi sjálfur ekki verið í kjöri.