Demókratar fögnuðu stórsigri í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nótt og tryggðu sér meirihluta í bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni. En á meðan athygli heimsins beindist að ósigri Repúblikana og þeirri erfiðu stöðu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti stendur nú frammi fyrir, áttu sér stað ýmis önnur eftirtektarverð tíðindi.
Áratugalöng sigurganga Repúblikana tók enda í nokkrum ríkjum, frambjóðendur brutu blað í bandarískri stjórnmálasögu og tvöfaldur gullverðlaunahafi á Ólympíumóti fatlaðra tryggði sér sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Úrslitin komu víða á óvart, ekki síst í ríkjum þar sem Repúblikanar hafa lengi haft tögl og hagldir. Hér er litið yfir nokkur af þeim athyglisverðu tíðindum sem féllu í skuggann af stóru kosningatíðindunum.
Rétt er að taka fram að talningu atkvæða er enn ekki lokið alls staðar og byggja úrslitin því í einhverjum tilvikum á bráðabirgðaniðurstöðum og mati bandarískra fjölmiðla.
Sjá einnig: Bandaríkjamenn bregðast við vonbrigðum og sigrum næturinnar - „Repúblikanaflokkurinn dó í nótt“
94 ára sigurganga á enda
Í Kansas urðu söguleg tíðindi þegar Demókratinn Adam Hamilton sigraði Roger Marshall, sitjandi öldungadeildarþingmann Repúblikana.
Demókratar höfðu ekki unnið kosningu til öldungadeildarinnar í Kansas síðan árið 1932, þegar Franklin D. Roosevelt var kjörinn forseti Bandaríkjanna í miðri kreppunni miklu.
Sigur Hamiltons batt því enda á 94 ára bið Demókrata eftir öldungadeildarsæti í ríkinu.
Pólitískur jarðskjálfti í Texas
Texas hefur um áratugaskeið verið eitt helsta vígi Repúblikana, en þar urðu einnig mikil tíðindi.
James Talarico, frambjóðandi Demókrata, sigraði Ken Paxton, fyrrverandi dómsmálaráðherra ríkisins, í kosningum til öldungadeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í 38 ár sem Demókrati sigrar í kosningu til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Texas.
Það voru þó ekki einu tíðindin úr ríkinu. Gina Hinojosa, frambjóðandi Demókrata, sigraði Greg Abbott, sitjandi ríkisstjóra Repúblikana, og varð þar með fyrsta konan af rómönskum uppruna til að vera kjörin ríkisstjóri Texas.
Frá Ólympíugulli til öldungadeildarinnar
Í Iowa skrifaði Josh Turek nýjan kafla í óvenjulegri ævisögu sinni þegar hann sigraði Ashley Hinson, frambjóðanda Repúblikana, í kosningum til öldungadeildarinnar.
Turek fæddist með klofinn hrygg og hefur notað hjólastól frá unga aldri. Hann er fyrrverandi afreksmaður í körfubolta fatlaðra og hefur tvívegis orðið Ólympíumeistari með bandaríska landsliðinu á Ólympíumóti fatlaðra.
Nú tekur hann sæti á Bandaríkjaþingi eftir að hafa tryggt Demókrötum öldungadeildarsæti sem áður var í höndum Repúblikana.
Fyrsta svarta konan kjörin ríkisstjóri
Í Georgíu náði Keisha Lance Bottoms sögulegum áfanga þegar hún var kjörin ríkisstjóri.
Bottoms, sem áður gegndi embætti borgarstjóra Atlanta, varð þar með fyrsta svarta konan í sögu Bandaríkjanna til að vera kjörin ríkisstjóri.
Hún sigraði kaupsýslumanninn Rick Jackson sem bauð sig fram fyrir Repúblikana.
Sigurinn markar jafnframt tímamót í stjórnmálum Georgíu, því Demókratar höfðu ekki unnið ríkisstjóraembættið þar frá árinu 1998.
Frumbyggjakona skrifar sögu
Önnur kona sem braut blað í stjórnmálasögu Bandaríkjanna er Deb Haaland, sem sigraði í ríkisstjórakosningunum í Nýju-Mexíkó.
Haaland varð fyrsta kona af frumbyggjaættum til að vera kjörin ríkisstjóri í Bandaríkjunum.
Hún tilheyrir Laguna Pueblo-þjóðinni og var áður innanríkisráðherra í ríkisstjórn Joe Biden. Hún var jafnframt fyrsti einstaklingurinn af frumbyggjaættum til að gegna ráðherraembætti í bandarískri ríkisstjórn.
Braut blað í sögu öldungadeildarinnar
Í New Hampshire vann Chris Pappas, þingmaður Demókrata, kosningu til öldungadeildarinnar.
Með sigrinum varð hann fyrsti opinberlega samkynhneigði karlmaðurinn til að vera kjörinn í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Pappas hefur setið í fulltrúadeildinni frá árinu 2019 og tekur nú sæti í öldungadeildinni.
Kjósendur höfðu áhyggjur af framfærslukostnaði
Þótt ýmis söguleg tímamót hafi orðið á kosninganóttinni benda útgönguspár til þess að efnahagsmálin hafi verið mörgum kjósendum ofarlega í huga.
Samkvæmt könnun SSRS, sem framkvæmd var fyrir hóp bandarískra fjölmiðla, sögðu nærri níu af hverjum tíu kjósendum að framfærslukostnaður hefði skipt miklu eða verulegu máli við atkvæðagreiðsluna.
Nærri tveir þriðju hlutar þátttakenda töldu Trump bera ábyrgð á háu verðlagi og um þrír fjórðu sögðust óánægðir eða reiðir vegna þeirrar stefnu sem landið hefði tekið.
Úrslitin hafa verulegar afleiðingar fyrir Donald Trump, sem nú stendur frammi fyrir því að Demókratar munu stjórna báðum deildum Bandaríkjaþings þegar nýtt þing kemur saman í janúar.
Demókratar munu þá meðal annars geta stýrt mikilvægum þingnefndum, hafið rannsóknir á störfum ríkisstjórnarinnar og haft aukin áhrif á skipan dómara og háttsettra embættismanna.
Trump heldur þó áfram framkvæmdarvaldinu og getur beitt neitunarvaldi gegn lagafrumvörpum sem þingið samþykkir.
Hann hefur þó sagst munu sætta sig við kosningaúrslitin og vera reiðubúinn að vinna með Demókrötum.