Fréttir

Ráðuneyti Eyjólfs og stofnanir þess hafa eytt yfir 200 milljónum í auglýsingar á síðustu fjórum árum

Mynd
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Mynd/Stjórnarráðið

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess hafa síðan í september 2022 eytt yfir 200 milljónum króna í auglýsingar í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum og öðrum miðlum, bæði innlendum og erlendum. Á þessu ári hafa kaup ráðuneytisins á auglýsingum á erlendum samfélagsmiðlum dregist nokkuð saman.

Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármannsonar innviðaráðherra við fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 

Hildur spurði ráðherrann hvað ráðuneytið og stofnanir þess hafi varið miklu fé í auglýsingar á síðastliðnum fjórum árum. Fór hún fram á að svarið væri sundurliðað eftir mánuðum, tegund auglýsingamiðils, hvort miðillinn teldist til fjölmiðils eða samfélagsmiðils og hvort miðillinn væri innlendur eða erlendur.

Í svari Eyjólfs segir að í því sé tekinn samann heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess við birtingu auglýsinga á síðastliðnum fjórum árum, frá september 2022. Birtingarkostnaður sé flokkaður eftir mánuðum og hvort birtingar séu í innlendum eða erlendum miðlum. Í innlendum miðlum séu birtingar flokkaðar í tvennt; fjölmiðla og aðra miðla.

Í meðfylgjandi töflu sé birtur samanlagður birtingarkostnaður hjá innviðaráðuneyti, Byggðastofnun, Fjarskiptastofu, Samgöngustofu og Vegagerðinni. Enginn kostnaður falli til vegna auglýsinga hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Tilgreindur sé birtingarkostnaður vegna auglýsinga- og kynningarherferða, (almannaheillaauglýsinga), funda, viðburða og ráðstefna, atvinnuauglýsinga og ýmissa annarra tilkynninga. Kostnaður vegna lögbundinna birtinga í Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði sé undanskilinn.

Minna erlent 

Segir enn fremur í svari Eyjólfs að ráðuneyti og stofnanir leggi ríka áherslu á að birta auglýsingar í íslenskum fjölmiðlum. Stofnanir ráðuneytisins hafi margar hverjar lögum samkvæmt ríka tilkynningarskyldu og/eða sinnt lögbundnu fræðslu- og kynningarstarfi. Áhersla sé lögð á birtingar í innlendum miðlum en til að ná til allra markhópa geti staðið fagleg rök til þess að birta auglýsingar á völdum erlendum samfélagsmiðlum samhliða birtingum í íslenskum fjölmiðlum. Einkum eigi það við um almannaheillaauglýsingar og átaksverkefni þegar sérstaklega þurfi að ná til sérstakra hópa, t.d. ungmenna, eða í þeim tilvikum þegar miðla þurfi upplýsingum um staðbundna viðburði og kynningarfundi á tilteknum svæðum.

Í töflunni með kostnaðartölunni kemur fram að heildareyðsla ráðuneytisins og stofnana þess í auglýsingar frá september 2022 og fram í september 2026, en minna ber á að Eyjólfur varð innviðaráðherra í desember 2024, sé 208.595.025 krónur. Þar af fóru 156.646.035 króna í auglýsingar í innlendum fjölmiðlum, 33.114.476 í aðra innlenda miðla og 18.834.514 í auglýsingar á erlendum samfélagsmiðlum.

Áberandi er hversu mikið lægri upphæðum hefur verið eytt í auglýsingar á erlendum samfélagsmiðlum í hverjum mánuði á þessu ári en eyðslan var til að mynda 0 krónur í janúar og september og samtals um 4.000 krónur í júní og júlí. Hæsta upphæðin sem eytt hefur verið á þessu ári í auglýsingar var í ágúst, 89.843 krónur. Til samanburðar má nefna að í ágúst 2025 var þessi upphæð um 1,2 milljónir króna. Heildareyðsla ráðuneytisins og stofnana þess í auglýsingar virðist einnig hafa farið minnkandi á þessu ári en hún fór hæst í 2,5 milljónir í maí en hæstu tölurnar í einstökum mánuði voru 6,1 milljón króna árið 2025, 9,2 milljónir árið 2024, 17,95 milljónir árið 2023 og af þeim mánuðum ársins 2022 sem svarið nær til 7,7 milljónir.