Fréttir

Hannes Hólmsteinn bregst við tíðindum morgunsins: „Nær ekki nokkurri átt“

Mynd
Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hannes Hólmsteinn Gissuararson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi átt skilið ráðningu, sumt sem hann segi og geri nái ekki nokkurri átt. Demókratar fögnuðu stórsigri í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nótt og tryggðu sér meirihluta í bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni, meðal þess sem gerðist var að Demókratar sigruðu í öldungadeildinni í Kansas, í fyrsta sinn í 94 ár. 

Sjá einnig: Þetta gerðist líka í bandarísku kosningunum í nótt

Hannes brást við tíðindum morgunsins í færslu á Facebook. „Kosningaúrslitin í Bandaríkjunum voru svipuð að breyttu breytanda og í kosningunum á miðju kjörtímabili Bush yngri 2006. Sitjandi forseti fer langoftast illa út úr kosningum á miðju kjörtímabili hans. En Trump átti skilið ráðningu,“ segir Hannes.

„Hann hefur gert margt gott, þar á meðal að afvopna klerkana í Íran og lækka skatta. En hann hefur gengið allt of langt í yfirlýsingum, og hann er furðulega hrifinn af einræðisherrunum í Rússlandi, Kína og Norður-Kóreu. Það þarf að lifa við þá, en það er óþarfi að lofa þá. Og tollastefna hans er röng.“

Hann segir að það hafi verið gott hjá Trump að ráðast á klerkana í Íran sem séu stórhættulegir öfgamenn. 

„Og þegar Bandaríkin hættu að hefta Ísrael, sýndi það, hvað í því býr. Ísrael gat með aðstoð Bandaríkjanna barið niður Hizbollah, Hamas og forystusveit klerkanna. En sumt, sem hann segir og gerir, nær ekki nokkurri átt. Ótrúlegast var, þegar sendiboði hans, Witkoff, sagði, að Pútin væri mannúðarsinni, humanitarian. Það þarf að semja við Pútín, en að segja, að hann sé mannúðarsinni, gamli, grályndi leyniþjónustumaðurinn, er fáránlegt.“