Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra, fagnar tapi Repúblikanaflokksins í þingkosningunum í nótt. Það sé hins vegar umhugsunarefni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sífellt fært sig nær Repúblikönum og Trump eftir því sem skoðanir þeirra hafi orðið öfgafyllri.
„Demókratar unnu, en í raun er nær sanni að segja að Trump hafi koltapað. Sem betur fer,“ segir Benedikt í færslu á samfélagsmiðlum.
Eins og flestir vita unnu Demókratar stóra sigra í báðum þingdeildum í kosningunum í nótt. Unnu jafn vel sæti sem ekki voru talin baráttusæti fyrir kosningarnar. Einnig unnu þeir fjölmarga fylkisstjórastóla af Repúblikönum.
Benedikt segir að þegar hann hafi búið í Bandaríkjunum hafi hann alltaf talið frjálslynda Demókrata næst sér í skoðunum. Þeir hafi verið líkastir Sjálfstæðisflokknum af íslensku flokkunum. Hann segir hins vegar að aldrei eigi að verða bergnuminn af stjórnmálamönnum því þeir valdi alltaf vonbrigðum. Trump hafi hins vegar aldrei valdið vonbrigðum því væntingarnar hafi aldri verið neinar.
Tollmúrar og þjónkun við einræðisherra
„Ég hef sveiflast milli þess hvort hann sé, klikkaður, gerspilltur eða vondur maður. Líklega er hann fyrst og fremst heimskur,“ segir Benedikt. Það sé undarlegt að Sjálfstæðisflokkurinn hér á Íslandi færi sig nær slíkum manni.
„Eftir því sem Repúblikanar hafa orðið einstrengingslegri og öfgafyllri veldur það mér meiri vonbrigðum að Sjálfstæðismenn á Íslandi færa sig nær flokknum og sækja flokksþing þeirra og öfgasinnaðar hugveitur í Washington,“ segir Benedikt. „Á sama tíma sýnir nýtt átrúnaðargoð þeirra kvenfyrirlitningu og Rússadaður og Sjálfstæðismenn láta sér vel líka. Sem flokksmanni í áratugi með marga vini og góðkunningja í flokknum finnst mér það leitt. Hægri er ekki tollmúrar, árásir á bandamenn og þjónkun við einræðisherra.“