Alvarleg ísing gæti hafa átt þátt í því að Learjet 60-einkaþota hrapaði í Flórída á sunnudag með þeim afleiðingum að allir níu um borð létust. Þetta telur bandaríski flugsérfræðingurinn Steve Scheibner, fyrrverandi flugstjóri hjá American Airlines, sem hefur farið yfir síðustu fjarskipti flugmannanna við flugumferðarstjórn.
Þotan var á leið frá Texas til Bahamaeyja þegar hún missti skyndilega flughæð og hrapaði til jarðar í Palm Beach-sýslu. Meðal þeirra sem fórust voru athafnamaðurinn Adam Robinson, eiginkona hans og tvö ung börn þeirra. Aðstoðarflugmaðurinn var aðeins tvítug kona.
Scheibner, sem er þekktur undir nafninu Captain Steeeve á YouTube, telur að ísmyndun á vængjum þotunnar kunni að hafa raskað loftflæði og valdið því að vélin missti lyftikraft.
Tilkynntu um ísingu skömmu fyrir slysið
Skömmu áður en þotan hrapaði höfðu flugmennirnir tilkynnt um væga ísingu og miðlungsókyrrð í um 35.000 feta hæð, eða tæplega ellefu kílómetra hæð.
„Við erum með væga, glæra ísingu sem við ráðum við og miðlungsókyrrð,“ sagði annar flugmannanna við flugumferðarstjórn.
Aðstæður versnuðu hins vegar skyndilega. Flugmennirnir óskuðu eftir að hækka flugið í 37.000 fet en skömmu síðar tók þotan að missa hæð með ógnarhraða.
Scheibner telur að svokallaðir „ofurkældir vatnsdropar“ (e. supercooled droplets) kunni að hafa átt þátt í slysinu. Slíkir dropar geta frosið við snertingu við vængi flugvéla og myndað ís sem breytir lögun og truflar loftflæðið.
Við slíkar aðstæður getur lyftikraftur minnkað verulega og vængirnir misst flugeiginleika sína.
„Þessir ofurkældu vatnsdropar safnast upp og mynda íshrygg á vængnum, þannig að flugvélin hættir einfaldlega að fljúga,“ segir Scheibner.
Samkvæmt fluggögnum fór fallhraði þotunnar á einum tímapunkti yfir 32.000 fet á mínútu, sem jafngildir um 160 metrum á sekúndu.
Bandaríska samgönguöryggisnefndin (NTSB) rannsakar slysið og hefur staðfest að flugmennirnir tilkynntu um ísingu, ókyrrð og úrkomu áður en þotan hrapaði.
Rannsakendur hafa jafnframt fundið vísbendingar um að hlutar vélarinnar kunni að hafa losnað áður en hún skall á jörðinni. Slysið er enn til rannsóknar og ekki liggur fyrir hvenær lokaskýrsla um orsakir þess verður birt.