Fréttir

Pétur segir meirihlutann hafa skorið niður verkefni sem skiluðu borginni peningum

Mynd

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir nýjan meirihluta borgarstjórnar hafa farið offari í niðurskurðaraðgerðum sínum og meðal annars lagt niður verkefni sem hafi skilað borginni umtalsverðum fjárhagslegum ávinningi. Hann segir ekkert neyðarástand ríkja í fjármálum borgarinnar sem réttlæti jafn harkalegar aðgerðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu Samfylkingarinnar þar sem vitnað er til ræðu Péturs á fundi borgarstjórnar í dag, þar sem fjárhagsáætlun næsta árs var til fyrri umræðu.

Pétur gagnrýndi sérstaklega að meirihlutinn hefði á aðeins fimm mánuðum ráðist í þrjár niðurskurðarlotur sem fela í sér fækkun um 130 stöðugildi. Í flýtinum hefðu verkefni verið lögð niður án þess að nægilegt tillit væri tekið til þess fjárhagslega ávinnings sem þau skiluðu.

Segir niðurskurðinn geta reynst dýrkeyptan

Pétur nefndi meðal annars Virknihúsið, sem hefði á þremur árum aðstoðað 286 einstaklinga við að komast af fjárhagsaðstoð og út á vinnumarkaðinn. Að hans sögn gæti sá árangur hafa skilað borginni um 380 milljónum króna á ári.

Þá hefði Rannsóknarþjónusta Reykjavíkurborgar aflað hundruða milljóna króna í alþjóðlega styrki á undanförnum árum. Einnig hefði starfsmanni á þjónustu- og nýsköpunarsviði verið sagt upp þrátt fyrir að hafa gegnt lykilhlutverki í verkefnum sem áætlað var að gætu skilað borgarsjóði 257 milljóna króna árlegum ábata.

„Það er ekki nóg að strika út línur í Excel-skjali og kalla það hagræðingu. Það er nefnilega hægt að lækka launakostnaðinn en koma samt út í tapi. Það eru virkilega dýr mistök,“ sagði Pétur.

Segir ekkert neyðarástand ríkja

Pétur hafnaði því jafnframt að fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar væri svo slæm að grípa þyrfti til jafn umfangsmikils niðurskurðar.

Hann benti á að halli A-hluta borgarinnar hefði numið 3,2 milljörðum króna á fyrri hluta ársins, en grunnreksturinn hefði skilað tæplega átta milljörðum króna í afgang fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Sú niðurstaða væri 4,6 milljörðum betri en á sama tímabili í fyrra.

Þá bar hann fjárhag borgarinnar saman við nágrannasveitarfélögin og sagði hallann á hvern íbúa hafa verið um 22 þúsund krónur í Reykjavík, samanborið við 29 þúsund í Garðabæ, 72 þúsund í Hafnarfirði og 113 þúsund á Seltjarnarnesi.

„Nú ætla ég ekki að draga þá ályktun af þessum tölum að Sjálfstæðisflokkurinn sé sérstaklega lélegur í að reka sveitarfélög, þótt freistingin sé auðvitað til staðar. En við skulum þá líka hætta að halda því fram að Reykjavík sé einhver sérstakur vandræðagemsi í fjármálum,“ sagði hann.

Spyr hvað varð um stórsóknina í skólamálum

Pétur gagnrýndi einnig að skóla- og frístundasvið borgarinnar væri gert að skera niður um 2,2 milljarða króna. Þar af væru 400 milljónir teknar af grunnskólum og 200 milljónir af leikskólum, auk þess sem 960 milljónir króna væru enn óútfærðar.

Jafnframt lækkuðu fjárheimildir til frístundastarfs um rúmar 300 milljónir króna milli ára, þrátt fyrir að gert væri ráð fyrir fjölgun barna í þjónustunni.

„Meirihlutinn hefur boðað stórsókn í menntamálum en ég á erfitt með að sjá hvernig þessi mikli niðurskurður í skólamálum samræmist því,“ sagði Pétur.

Hann telur að aðgerðir meirihlutans endurspegli ekki aðeins viðleitni til að bæta fjárhag borgarinnar heldur einnig pólitíska hugmyndafræði.

„Ég sé mikinn metnað hjá nýjum meirihluta í að minnka, fækka, leggja niður, selja og útvista. En ég sé miklu minni metnað í að byggja upp,“ sagði Pétur og varaði við því að kappið við að skera niður yrði meira en viljinn til að byggja upp og rækta samfélagið.